
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti á dögunum
yfirtöku Meta, móðurfélags Facebook, á bandaríska fyrirtækinu Kustomer.
Framkvæmdastjórnin setti samrunanum þó skilyrði sem Meta hefur skuldbundið sig
til að tryggja. Kustomer er lítið félag á bandarískan mælikvarða en í örum
vexti. Fyrirtækið sérhæfir sig í hugbúnaðargerð fyrir stjórnun viðskiptatengsla
eða CRM (Customer Relationship Management).
Íslensk samkeppnisyfirvöld voru hluti af meðferð og rannsókn
málsins, en þau sendu beiðni til framkvæmdastjórnarinnar um að hið síðarnefnda
tæki samrunann til formlegrar rannsóknar. Samandregið þýðir það að
framkvæmdastjórn ESB tók til rannsóknar þau hugsanlegu áhrif sem samruninn gæti
haft á íslenska markaði og aðstæður á þeim. Samkeppniseftirlitið á í ítarlegu
og góðu samstarfi við önnur evrópsk samkeppnisyfirvöld, og er rannsókn á
samruna Facebook og Kustomer dæmi um samspil samkeppnisyfirvalda í Evrópu.
Í kjölfar beiðna nokkurra samkeppnisyfirvalda í Evrópu hóf framkvæmdastjórn
ESB svo ítarlega rannsókn á samrunanum 2. ágúst 2021. CRM-hugbúnaður er gjarnan
tengdur við samfélags- og samskiptamiðla en það er einmitt þjónustan sem
Kustomer býður upp á, það er að draga saman ýmsar samskiptaleiðir fyrirtækja og
viðskiptavina í eitt verkfæri. Meta á nokkur af vinsælustu samskiptaforritum
heims á borð við Messenger, WhatsApp og Instagram. Áhyggjur
framkvæmdastjórnarinnar lutu einna helst að mögulegu heftu aðgengi keppinauta
Kustomer að forritunarviðmótum (e. API) og vefþjónustum þessara vinsælu forrita
í kjölfar samrunans.
Til að bregðast við áhyggjum framkvæmdastjórnarinnar lagði Meta til eftirfarandi skilyrði:
Sérstakur kunnáttumaður (e. trustee) verður fenginn til þess
að fylgjast með innleiðingu skilyrðanna. Sá verður með víðtækar heimildir og
hefur aðgengi að öllum gögnum Meta, starfsfólki fyrirtækisins, starfsstöðvum og
tækniupplýsingum. Að auki getur kunnáttumaðurinn ráðið sérfræðing á vissum
tæknilegum sviðum sé þess þörf. Það er mat framkvæmdastjórnarinnar að samkeppnislegum
ógnum samrunans sé eytt verði skilyrðin uppfyllt.
Daninn Margrethe Vestager, varaforseti ESB og yfirmaður
samkeppnismála, segir mikilvægt að fylgjast vel stóru fyrirtækjunum í
tæknigeiranum:
„Við þurfum að fylgjast sérstaklega vel með öllum aðgerðum
stóru fyrirtækjanna í tæknigeiranum sem eigna sér sífellt stærri hluta af
kökunni í hinu stafræna hagkerfi, burtséð frá stærð fyrirtækisins sem er
yfirtekið. Ákvörðun okkar í þessu máli tryggir að keppinautar og ný fyrirtæki á
markaði fyrir stjórnun viðskiptatengsla geti áfram keppt í heilbrigðu
samkeppnisumhverfi. Þær skuldbindingar sem Meta hefur gengist undir tryggja
áframhaldandi ókeypis og sambærilegan aðgang að hinum mikilvægu samskiptaleiðum
í eigu Meta.“
Hér má
nálgast frétt framkvæmdastjórnarinnar um niðurstöðu málsins.
"*" indicates required fields