
Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup ríkisins á
öllum hlutum Auðkenni ehf. á grundvelli skilyrða í sátt sem samrunaaðilar gerðu
við Samkeppniseftirlitið. Með sáttinni
skuldbinda samrunaaðilar sig til þess að fara að skilyrðum sem miða að því að
vinna gegn hugsanlegum skaðlegum áhrifum samrunans á samkeppni.
Auðkenni
er fyrirtæki sem veitir rafræna auðkenningar- og traustþjónustu á Íslandi.
Fyrirtækið hefur fram til þessa verið í eigu helstu notenda þjónustunnar. Þeir
stærstu eru viðskiptabankarnir þrír ásamt Símanum hf. Auðkenni hefur þannig starfað á grundvelli undanþágu frá samráðsbanni samkeppnislaga frá árinu
2006 til ársins 2020 þegar breytingar urðu á framkvæmd samkeppnislaga og
sjálfsmat fyrirtækja vegna samstarfs var tekið upp. Með breytingu á eignarhaldi
Auðkennis verður fyrirtækið ekki lengur í eigu keppinauta sem starfa á sama
markaði.
Með sátt samrunaaðila við Samkeppniseftirlitið
skuldubundu þeir sig til að grípa til aðgerða og fylgja eftirfarandi skilyrðum
til þess að sporna við samkeppnishindrunum sem annars gætu leitt af samrunanum:
Við meðferð málsins birti Samkeppniseftirlitið tilkynningu á heimasíðu sinni þar sem markaðsaðilum var gefin kostur á að koma á
framfæri athugasemdum við samrunann. Einnig var óskað sjónarmiða hjá fyrirtækjum
sem starfa á traustþjónustumarkaði og þeim gefin kostur á að koma á framfæri
athugasemdum.
Í ákvörðun eftirlitsins nr. 5/2022 frá 18. febrúar er að finna ítarlegri umfjöllun um
meðferð málsins, þau skilyrði sem sett eru samrunanum og mat á samkeppnislegum
áhrifum hans.
"*" indicates required fields