Logo Competition

Court of Appeal confirms the annulment of a merger in the diagnostic imaging services market

3 May 2024
Snowcap Mountain

Með dómi Landsréttar í dag var staðfest ógilding
Samkeppniseftirlitsins á samruna Íslenskrar myndgreiningar ehf. og
Læknisfræðilegrar myndgreiningar ehf. Með dóminum er þannig staðfestur dómur
héraðsdóms Reykjavíkur frá árinu 2022. Áður hafði áfrýjunarnefnd samkeppnismála
staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, sbr. ákvörðun þess nr. 35/2020.

Starfsemi samrunaaðila felst í því að veita læknisfræðilega
myndgreiningarþjónustu, en undir hana falla m.a. tölvusneiðmyndarannsóknir,
röntgenrannsóknir, ómun, segulómun og skyggnirannsóknir. Starfsemin hefur mikla
þýðingu fyrir heilbrigðisþjónustu á landinu. Samkeppnisröskun á þessu sviði
getur verið til þess fallin að draga úr gæðum og hækka kostnað við
heilbrigðisþjónustu.

Með samrunanum hefði keppinautum á markaðnum fækkað úr þremur í
tvo og samanlögð markaðshlutdeild samrunaaðila orðið á bilinu 80-100%, eftir
því um hvaða þjónustuþætti er að ræða.

Dómur Landsréttar er aðgengilegur here.

Fyrri frétt um dóm Héraðsdóms Reykjavíkur er aðgengileg here.

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.