Logo Competition

The Competition Authority's Breakfast Meeting – The Impact of Competition on Economic Growth and Wages

25. August 2022

Miðvikudagurinn 31. ágúst
frá 08:30 til 09:30 | Grand Hótel og í streymi | SKRÁNING HÉR

Í tilefni af samstarfsfundi norrænu samkeppniseftirlitanna heldur
Samkeppniseftirlitið opinn morgunfund um áhrif samkeppni á hagvöxt og vinnumarkað
miðvikudaginn 31. ágúst. Fundurinn hefst klukkan 08:30 en morgunverður klukkan 08:15.

Á fundinum mun Fiona Scott Morton fjalla um hvernig samkeppni getur eflt
hagvöxt og bætt launakjör almennings. Er þetta brýnt viðfangsefni í ljósi
þeirra efnahagslegu áskorana sem flest ríki glíma við í dag.

Fiona er hagfræðiprófessor við Yale háskóla í Bandaríkjunum og er hún með
doktorsgráðu frá Tækniháskólanum í Massachusetts (MIT).
Fiona hefur einblínt á samkeppnishagfræði
í rannsóknum sínum auk þess sem hún starfaði um skeið sem aðalhagfræðingur samkeppnisdeildar
dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna sem m.a. fer með framkvæmd á þarlendum
competition law.

Gylfi Magnússon, prófessor við Háskóla Íslands, mun í framhaldi af erindi
Fionu bregðast við og fjalla um þýðingu þess fyrir lítil opin hagkerfi á borð
við það íslenska.

Aðgangur að fundinum er ókeypis en þátttendur þurfa að SKRÁ SIG HÉR. Fyrir þá sem komast ekki á Grand Hótel verður einnig
hægt að fylgjast með í beinu streymi.

Fundurinn er haldinn í tengslum við árlegan fund norrænu
samkeppniseftirlitanna, en Samkeppniseftirlitið er gestgjafi að þessu sinni.

Agenda:

  • 08:15 – Kaffi og
    morgunverður
  • 08:30 – Páll
    Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, býður gesti velkomna
  • 08:35 – Fiona
    Scott Morton, hagfræðiprófessor við Yale háskóla – erindi
  • 09:05 – Gylfi
    Magnússon, prófessor við Háskóla Íslands – erindi
  • 09:15 – Spurningar úr sal og umræður
  • 09:25 – Lilja
    Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, flytur lokaorð

Með fundarstjórn fer Valur Þráinsson, aðalhagfræðingur
Samkeppniseftirlitsins.

Fundurinn er haldinn í tengslum við árlegan fund norrænu
samkeppniseftirlitanna, en Samkeppniseftirlitið er gestgjafi að þessu sinni.

Í tilefni af komu að
aðalhagfræðinga samkeppniseftirlita í Evrópu hingað til lands hélt
Samkeppniseftirlitið opin fund 13. júní sl. þar sem fjallað var um samspil samkeppni, verðbólgu og kaupmáttar. Lilja
Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, flutti opnunarávarp á
fundinum og Pierre Régibeau, aðalhagfræðingur samkeppnisdeildar
framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, flutti erindi. Seðlabankastjóri,
bandarískur fræðimaður og aðalhagfræðingur portúgalska samkeppniseftirlitsins
tóku síðan þátt í umræðum. Sveinn Agnarsson, stjórnarformaður
Samkeppniseftirlitsins, flutti lokaorð. Hægt er að horfa á upptöku á þeim fundi hér að neðan.

https://www.youtube.com/watch?v=4ffHFM1KPNg

Fundir þessir eru liður í viðleitni
Samkeppniseftirlitsins að vekja athygli á mikilvægi samkeppni til að bæta kjör
almennings og stuðla að þróttmiklu atvinnulífi. 

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.