Logo Competition

Draft assessment report on the fuel market to be published by the end of September – Updated timetable for the market study.

3. April 2018
Snowcap Mountain

Samkeppniseftirlitið vinnur nú að frágangi svokallaðrar frummatsskýrslu um eldsneytismarkaðinn, en skýrslan er liður í yfirstandandi markaðsrannsókn á eldsneytismarkaðnum. Rannsóknin felur í sér athugun á því hvort grípa þurfi til aðgerða gegn aðstæðum eða háttsemi sem koma í veg fyrir, takmarka eða hafa skaðleg áhrif á samkeppni almenningi til tjóns. Byggir rannsóknin á c-lið 1. mgr. 16 gr. samkeppnislaga, sbr. einnig reglur No. 490/2013  um markaðsrannsóknir Samkeppniseftirlitsins.

Nú er stefnt að birtingu framangreindrar frummatsskýrslu fyrir lok september næstkomandi. Tefst birting skýrslunnar því um allt að þrjá mánuði frá því sem kynnt hafði verið á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins (here). Stafa þessar tafir einkum af umfangsmeiri gagnaúrvinnslu en fyrri tímaáætlun gerði ráð fyrir.

Frummatsskýrslan mun hafa að geyma drög að niðurstöðu markaðsrannsóknar sbr. 8. gr. fyrrgreindra reglna nr. 490/2013. Í framhaldi verður aðilum máls, og þeim sem þess óska, gefinn hæfilegur frestur til að gera skriflegar athugasemdir við frummatsskýrsluna. Mun Samkeppniseftirlitið skipuleggja opinn fund þar sem hagsmunaaðilum og öðrum gefst færi á að kynna sér skýrsluna og koma á framfæri sínum sjónarmiðum um frummatsskýrsluna.

Að loknu framangreindu ferli mun Samkeppniseftirlitið leggja mat á hvort nauðsynlegt sé að grípa til íhlutunar á markaðnum skv. c-lið 1. mgr.16. gr. samkeppnislaga.

Nánari upplýsingar um markaðsrannsóknina má finna á sérstakri information page á heimasíðu eftirlitsins.

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.