Logo Competition

The Competition Authority is seeking views on the acquisition by Samkaup hf. of 14 stores from Basko ehf.

17. August 2018
Snowcap Mountain

Samkeppniseftirlitið hefur nú til rannsóknar samkeppnisleg áhrif samruna vegna kaupa Samkaupa hf. á eignum 14 verslana af Basko verslunum ehf. Þar sem um er að ræða samruna á mörkuðum sem varða almenning miklu hefur Samkeppniseftirlitið ákveðið að óska opinberlega eftir sjónarmiðum almennings og fyrirtækja um áhrif samrunans á samkeppni. Til að gefa almenningi og öðrum hagaðilum kost á að kynna sér málið hefur Samkeppniseftirlitið birt samrunatilkynningu málsins á heimasíðu sinni.

 Rannsókn málsins hófst eftir að fullnægjandi samrunatilkynning barst Samkeppniseftirlitinu þann 25. júní sl.   Samrunatilkynning

Rannsóknarefni

Í málinu ber Samkeppniseftirlitinu að rannsaka hvort viðkomandi samruni hindri virka samkeppni með því að markaðsráðandi staða eins eða fleiri fyrirtækja verði til eða slík staða styrkist, eða að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti, sbr. 17. gr. c samkeppnislaga.

 Við rannsóknina hefur Samkeppniseftirlitið m.a. til skoðunar hver staðbundin áhrif samrunans kunna að vera á svæðum þar sem keppinautum mun fækka í kjölfar samrunans. Hefur Samkeppniseftirlitið sérstaklega til skoðunar hvort þeir keppinautar sem eftir standa á tilteknum svæðum muni veita samrunaaðilum nægilegt samkeppnislegt aðhald í kjölfar samrunans. Í þessu samhengi horfir Samkeppniseftirlitið m.a. til dagvörumarkaðar á Akureyri og í Reykjanesbæ. Einnig horfir Samkeppniseftirlitið til mögulegra áhrifa á tilteknum svæðum á höfuðborgarsvæðinu.

Sjónarmiða óskað

Með tilkynningu þessari er öllum sem áhuga hafa gefið tækifæri til þess að koma sjónarmiðum á framfæri vegna samrunans.  Er þess óskað að sjónarmið berist Samkeppniseftirlitinu eigi síðar en 27. júlí nk. Hægt er að senda þau á netfangið samkeppni@samkeppni.is eða með bréfpósti: Samkeppniseftirlitið, Borgartún 26, 125 Reykjavík – Pósthólf 5120.

Málsmeðferðin – tímafrestir

Samkeppniseftirlitið hefur 25 virka daga til að taka afstöðu til þess hvort ástæða sé til frekari rannsóknar á samkeppnislegum áhrifum samruna. Reynist svo vera, hefur eftirlitið 70 virka daga til viðbótar til að taka ákvörðun í málinu.

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.