Logo Competition

The Competition Authority approves a new shop operator in Stykkishólmur

10. December 2019
Snowcap Mountain

Með sátt, dags. 11. september 2018, við Haga hf. samþykkti Samkeppniseftirlitið samruna félagsins og Olíuverzlunar Íslands hf. (Olís), sbr. nánar ákvörðun eftirlitsins nr. 9/2019. Með sáttinni voru samrunanum sett skilyrði sem ætlað var að mæta skaðlegum áhrifum hans á samkeppni. Til þess að bregðast við skaðlegum áhrifum samrunans á sölu dagvara í Stykkishólmi, en samrunaaðilar voru þeir einu sem seldu dagvörur í bæjarfélaginu, buðust Hagar til þess að selja dagvöruhluta verslunar Olís að Aðalgötu 25 Stykkishólmi.

Eftir skoðun óháðs kunnáttumanns á hæfi Ísborgar ehf. samþykkti Samkeppniseftirlitið félagið sem kaupanda að þeim eignum Haga á dagvörumarkaði sem seldar voru vegna skilyrðanna, þ. á m. versluninni að Aðalgötu 25. Rekstur Ísborgar í versluninni hefur hins vegar ekki gengið sem skyldi og var versluninni lokað í september sl. Því var óhjákvæmilegt að leita leiða til þess að ná fram markmiðum þeirra skilyrða sem sett voru vegna og í tengslum við samruna Haga og Olís.

Ísborg hefur gert leigusamning við félagið Krummafót ehf. um rekstur verslunar og veitingastaðar í húsnæðinu. Forsvarsmenn Krummafótar hafa á undanförunum árum rekið veitingastaðina Skúrinn og Skúrinn Pizza Joint í Stykkishólmi. Óháður kunnáttumaður tók samninginn til skoðunar og komst að þeirri niðurstöðu í áliti sínu að Krummafótur teldist hæfur rekstraraðili. Samkeppniseftirlitið samþykkti síðan Krummafót sem nýjan rekstraraðila, sbr. bréf eftirlitsins til félagsins dags. 9. desember 2019.

Í ljósi ábendinga frá viðskiptavinum verslunarinnar í kjölfar sölunnar til Ísborgar og rekstrarerfiðleika þess félags beindi Samkeppniseftirlitið þeim tilmælum til nýrra rekstraraðila að huga að því að opnunartími og vöruframboð verslunarinnar yrði í samræmi við þarfir viðskiptavina í Stykkishólmi. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Samkeppniseftirlitið hefur undir höndum mun uppistaðan í vöruúrvali verslunarinnar verða veitingar, dagvörur á þægindamarkaði, olíu- og bílavörur, vörur tengdar ferðamönnum, ásamt öðru.

Sjá nánar hjálagt bréf  Samkeppniseftirlitsins, dags. 9. desember 2019.

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.