
Með decision sem birt er í dag er leidd til lykta
rannsókn á ætluðum samkeppnishömlum í tengslum við framsetningu á drykkjarvörum
í hillum smásöluverslana. Ákvörðunin er grundvölluð á sáttum
Samkeppniseftirlitsins við annars vegar Ölgerðina Egil Skallagríms hf. og hins
vegar Coca-Cola European Partners Ísland ehf.
Með umræddum sáttum, sem eru samhljóða, skuldbinda
fyrirtækin sig til þess að fylgja tilteknum skilyrðum sem tryggja eiga að nýjir
og smærri keppinautar verði ekki fyrir samkeppnishindrunum af völdum stærri
keppinauta í tengslum við framstillingu á drykkjarvörum í hillum
smásöluverslana.
Jafnframt fallast fyrirtækin á að tiltekin samskipti
þeirra á milli, sem vörðuðu framstillingu vara frá þeim og keppinautum þeirra í
matvöruverslunum, hafi farið gegn banni við samstarfi keppinauta. Þá fallast
fyrirtækin á að greiða stjórnvaldssektir vegna málsins, samtals 37 m.kr., og er
lagt til grundvallar að fyrirtækin tvö beri jafna ábyrgð á málinu. Við ákvörðun
sekta hafði mikla þýðingu að málið sætti ekki samfelldri rannsókn og tafðist
verulega hjá Samkeppniseftirlitinu. Einnig er við ákvörðun sekta horft til
samstarfsvilja fyrirtækjanna sem endurspeglast í gerð fyrrgreindra sátta og
öðrum atvikum við rannsókn málsins.
|
|
"*" indicates required fields