
Samkeppniseftirlitið hefur haft til
skoðunar hvernig Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur fylgt fyrirmælum um
fjárhagslegan aðskilnað annars vegar vegna starfsemi þar sem félagið nýtur
opinberra fjárframlaga eða styrkja af almannafé og hins vegar starfsemi sem
rekin er í samkeppni við aðra aðila. Málið á rætur sínar að rekja til
ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins frá 2007 þar sem gerð var krafa um
fjárhagslegan aðskilnað hjá Landsbjörgu.
Ákvörðunin frá 2007 var tekin á
grundvelli ákvæðis í samkeppnislögum sem mælir fyrir um fjárhagslegan aðskilnað
á milli annars vegar þess hluta rekstrar sem er opinber eða nýtur verndar og
hins vegar þess hluta rekstrar sem er í frjálsri samkeppni við aðra aðila.
Tilgangur ákvæðisins er að koma í veg fyrir að samkeppnisrekstur sé
niðurgreiddur af starfsemi sem nýtur einkaleyfis eða opinberrar verndar.
Samkeppni í starfsemi Landsbjargar gætir
við smásölu á sjúkrakössum og heildsölu á flugeldum til aðildarfélaga sem
starfa um allt land.
Það er mat Samkeppniseftirlitsins
að Landsbjörg hafi fylgt fyrirmælum ákvörðunarinnar en hins vegar mætti standa
betur að upplýsingagjöf um fjárhagslegan aðskilnað sem er til þess fallin að
eyða tortryggni keppinauta. Vegna þessa mælist Samkeppniseftirlitið til þess
við Landsbjörgu að birta opinberlega á heimasíðu sinni greinargóðar upplýsingar
um aðskilnaðinn og hvernig samkeppniseiningar félagsins taki þátt í
sameiginlegum kostnaði og hvernig viðskipti á milli deilda séu eins og um
ótengda aðila sé að ræða.
Tilmæli um aukna upplýsingagjöf má
finna í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem birt var í dag .
Á þessu stigi telur
Samkeppniseftirlitið ekki forsendur til að aðhafast frekar vegna fjárhagslegs
aðskilnaðar í starfsemi Landsbjargar. Verði hins vegar ekki farið að tilmælum
Samkeppniseftirlitsins um bætta upplýsingagjöf kann að koma til þess að skilyrði
eldri ákvörðunar frá 2007 verði tekin til endurskoðunar.
"*" indicates required fields