Logo Competition

Competition Authority's opinion to the Budget Committee on state aid to Icelandair

1. September 2020
Snowcap Mountain

Samkeppniseftirlitið hefur sent fjárlaganefnd umsögn sína vegna frumvarpa er varða fyrirhugaða ríkisaðstoð við Icelandair.

Í umsögninni er lögð áhersla á eftirfarandi:

  1. Tryggt verði að stuðninginn verði aðeins hægt að nýta til flugrekstrar, sbr. nánar kafla 3. hér að framan.
  2. Áhrif ríkisaðstoðarinnar á keppinauta Icelandair verði metin og tekin afstaða til þess hvort ástæða sé til stuðningsaðgerða gagnvart þeim til þess að ná fram þeim heildarmarkmiðum sem liggja til grundvallar áformaðri ríkisaðstoð.
  3. Greina þarf til hvaða aðgerða stjórnvöld geta gripið til þess að draga úr aðgangshindrunum inn á viðkomandi markaði. Þannig getur komið til álita að ríkisaðstoð sé skilyrt, t.d. að því er varðar eftirfarandi þætti:

    – Að skapað sé rými fyrir nýjan keppinaut í áætlunarflugi með framsali afgreiðslutíma.
    – Að viðskiptum sé beint til keppinauta sem starfa í flugtengdri starfsemi, s.s. í flugafgreiðslu.
    – Að starfsemi sem ekki á að njóta ríkisstuðnings sé klofin frá félaginu eða aðskilin fjárhagslega.
    – Að uppkaup á keppinautum sé óheimil á meðan stuðningsins nýtur við.

  4. Huga þarf sérstaklega að þeirri umgjörð sem stjórnvöld hafa skapað atvinnurekstri á Keflavíkurflugvelli, sem m.a. endurspeglast í starfsemi Isavia hf.

Umsögnina má nálgast hér.

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.