Logo Competition

Gæta skal að samkeppnissjónarmiðum við útleigu og sölu húsnæðis á vegum hins opinbera

Analysis
Samkeppniseftirlitið hefur beint þeim tilmælum til opinberra aðila, hvort sem er á vettvangi ríkis eða sveitarfélaga, að þeir leiti tilboða í hlutlægu, málefnalegu og gagnsæju ferli þegar húsnæði eða önnur takmörkuð gæði eru seld eða leigð út til aðila sem stunda samkeppnisrekstur. Við ákvarðanir um skilmála, s.s. um sölu- eða leiguverð, eða tímalengd leigu, skal þess gætt að samkeppni sé ekki skekkt.
 
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á útleigu mennta- og menningarmálaráðuneytisins á húsnæði Héraðsskólans að Núpi í Dýrafirði til hótelreksturs var ein af ástæðum útgáfu álits nr. 1/2012. Hér má nálgast afrit af bréfi Samkeppniseftirlitsins til mennta- og menningarmálaráðuneytisins, dags. 27. ágúst 2012, þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að það hvernig ráðuneytið stóð að útleigu húsnæðisins hafi haft skaðleg áhrif á samkeppni í skilningi b. liðar 1. mgr. 16. gr. samkeppnislaga.
Opinion
Case number

1 / 2012

Date
28. September 2012
Company

The Competition Authority

Industries

Estate agent

Specialist services and other services

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.