Samkeppniseftirlitið vísar til þess að efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis hefur óskað eftir umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum (skatthlutfall eldsneytis), mál 607. Umsögnin er veitt í samræmi við hlutverk eftirlitsins samkvæmt c.-lið 1. mgr. 8. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, þar sem kveðið er á um að eftirlitið skuli gæta þess að aðgerðir opinberra aðila takmarki ekki samkeppni og benda á leiðir til að efla virka samkeppni. Frumvarpið kveður á um tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti og sérstakt eftirlitshlutverk Samkeppniseftirlitsins til að tryggja að lækkunin skili sér til neytenda.
3 / 2026
"*" indicates required fields