Logo Competition

The Competition Appeals Tribunal confirms the decision concerning the exemption for the cooperation between Eimskip and Royal Arctic Line in maritime transport.

13. September 2019
Snowcap Mountain

Þann 17. apríl 2019 tók Samkeppniseftirlitið ákvörðun nr.13/2019 , þar sem grænlenska skipafélaginu Royal Arctic Line A/S og Eimskip var veitt tímabundna heimild til samstarfs, sem felur í sér samnýtingu á plássi í áætlunarskipum félaganna. Samkeppniseftirlitið setti samstarfinu tiltekin skilyrði sem ætlað er að tryggja samkeppni á markaðnum. Eiga skilyrðin m.a. að tryggja aðgang grænlenska skipafélagsins að hafnaraðstöðu á Íslandi, auk þess sem stuðlað er að því að laust flutningspláss geti nýst almennum viðskiptavinum, umboðsmönnum og flutningamiðlunum. Með fyrrgreindu fyrirkomulagi verður grænlenska skipafélaginu kleift að bjóða upp á vikulegar áætlunarsiglingar til og frá Íslandi og þjónusta íslenska viðskiptavini – til hagsbóta fyrir íslenska neytendur, að mati Samkeppniseftirlitsins.

Samskip kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Gerði Samskip kröfu um að ákvörðun eftirlitsins yrði felld úr gildi.

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur í dag birt úrskurð þar sem kröfu og málsástæðum Samskipa er hafnað. Í úrskurði sínum telur áfrýjunarnefndin að þau viðbótarskilyrði sem tekin voru upp í sátt Samkeppniseftirlitsins við undanþágubeiðendur, voru m.a. sett til að ýta undir samkeppni og tryggja að innkoma Royal Arctic Line á hinn skilgreinda markað hefði jákvæð samkeppnisleg áhrif og yrði til hagsbóta fyrir neytendur. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála telur einnig að viðbótarskilyrðin innihaldi einnig mikilvægt hegðunarskilyrði undanþágubeiðenda og veiti Samkeppnieftirlitinu tækifæri til að fylgjast náið með þróun markaðarins og þeirra breytinga sem kunna að verða á honum í ljósi samstarfs félaganna. Hafi Samkeppniseftirlitið þannig möguleika á að grípa inn í þá þróun gerist þess þörf.

Úrskurðinn má finna hér.

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.