Logo Competition

Extended consultation period – Síldarvinnslan's purchase of a 50% stake in Ice Fresh Seafood from Samherji

27. March 2024
Snowcap Mountain

Með frétt þann
28. febrúar sl. veitti Samkeppniseftirlitið hverjum þeim sem hagsmuni eða áhuga
hefði færi á því að koma á framfæri umsögnum, athugasemdum og/eða sjónarmiðum
vegna kaupa Síldarvinnslunnar á helmingshlut í Ice Fresh Seafood af Samherja.

Sjá frétt 

The Competition Authority
hefur tilkynnt samrunaaðilum að nauðsynlegt sé að virkja frekari fresti til
rannsóknar málsins og athugunar á samkeppnislegum áhrifum samrunans.
Síldarvinnslan og Samherji eru bæði starfandi á sömu mörkuðum sem sameinast um
eitt svið í starfsemi sinni eða eitt sölustig í virðiskeðju sjávarafurða með
samrunanum. Þá hafi samruninn möguleg lóðrétt áhrif vegna aðgengis
annarra fiskvinnsla að hráefni annars vegar og annarra útgerðarfyrirtækja eða
mögulegra keppinauta að aflahlutdeildum hins vegar þar sem aðgangshindranir
virðast til staðar. Þá hefur athugun á eignar- og stjórnunarlegum tengslum
fyrirtækjanna og hvort breytingar á yfirráðum séu víðfeðmari en samrunaskrá
gefur til kynna, áhrif á umfang mögulegra samkeppnislegra áhrifa samrunans á
viðkomandi mörkuðum. Loks hefur aðeins hluti þeirra fyrirtækja, aðila og félaga
sem Samkeppniseftirlitið óskaði umsagnar og upplýsinga frá, svarað beiðni
eftirlitsins, og hyggst stofnunin framlengja frest þeirra til upplýsingagjafar.

The Competition Authority
hefur einnig ákveðið að framlengja almennt umsagnarferli til 9. apríl nk.
Umsagnir skulu berast á gogn@samkeppni.is

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.