Logo Competition

District court overturns decision of the Competition Appeals Tribunal

21. November 2022

Héraðsdómur Reykjavíkur sneri á föstudag úrskurði
áfrýjunarnefndar samkeppnismála
frá 2. desember 2021. Héraðsdómur komst að
þeirri niðurstöðu að Samskip hafi lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn
áfrýjunarnefndar um tiltekin atriði í agreement
Eimskips við Samkeppniseftirlitið
frá 16. júní 2021.

Með sáttinni viðurkenndi Eimskip alvarleg brot gegn banni
samkeppnislaga við ólögmætu samráði, greiddi 1,5 milljarða króna í
stjórnvaldssekt og skuldbatt sig til að grípa til nánar tiltekinna aðgerða í
því skyni að vinna gegn frekari brotum og efla samkeppni. Í því fólst meðal
annars að Eimskip skuldbatt sig til að hætta öllu samkeppnishamlandi samstarfi
við Samskip og önnur fyrirtæki í hvers konar flutningaþjónustu ef Samskip ættu
einnig í samstarfi við viðkomandi fyrirtæki. Þessu er lýst nánar í 3. málsgrein
3. greinar sáttarinnar.

Í kjölfar sáttarinnar beindu Samskip kæru til
áfrýjunarnefndar samkeppnismála og kröfðust þess að umrætt ákvæði sáttarinnar
um lok samstarfs yrði fellt úr gildi. Töldu Samskip meðal annars að fyrirmæli
sáttarinnar fælu í sér ólögmæta takmörkun á samnings- og atvinnufrelsi
fyrirtækisins og veikti stöðu þess gagnvart Eimskipi.

Það var niðurstaða áfrýjunarnefndar samkeppnismála að
Samskip hefðu ekki átt rétt á því að koma að gerð sáttarinnar við Eimskip og
gæti fyrirtækið því ekki borið umrætt ákvæði sáttarinnar undir
áfrýjunarnefndina. Í þessu sambandi var tekið fram að þætti Samskipa í
rannsókninni væri enn ólokið. Taldi áfrýjunarnefnd því óhjákvæmilegt að vísa
kæru Samskipa frá nefndinni.

Í dómi héraðsdóms frá því á föstudag var úrskurður
áfrýjunarnefndar sem áður segir felldur úr gildi og komist að þeirri niðurstöðu
að Samskip eigi lögvarða hagsmuni af því að fá efnisúrlausn áfrýjunarnefndar í
málinu.

Samkeppniseftirlitið mun nú yfirfara niðurstöðu héraðsdóms
og forsendur hans. Dóminn má nálgast hér.  

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.