Logo Competition

Mapping management and ownership structures in fisheries

5. October 2022

The Competition Authority
hefur ákveðið að hefja sérstaka athugun sem miðar að því að kortleggja
stjórnunar- og eignatengsl sjávarútvegsfyrirtækja.

Athugunin
byggir á d-lið 1. mgr. 8. gr. samkeppnislaga, en samkvæmt ákvæðinu er eitt af
hlutverkum Samkeppniseftirlitsins að fylgjast með „þróun á samkeppnis- og
viðskiptaháttum á einstökum mörkuðum í íslensku viðskiptalífi og kanna
stjórnunar- og eignatengsl á milli fyrirtækja
.“ Þar kemur einnig fram að stofnunin skuli
birta skýrslur um athuganir sínar.

Á vettvangi
matvælaráðuneytisins stendur nú yfir heildarstefnumótun í sjávarútvegi. Hluti
af því starfi er kortlagning stjórnunar- og eignatengsla í sjávarútvegi. Sem
lið í þessari vinnu hefur matvælaráðuneytið nú gert samning við
Samkeppniseftirlitið, sem gerir því kleift að hefja framangreinda athugun.
Frétt ráðuneytisins er aðgengileg here.

Í
athuguninni felst upplýsingasöfnun og kortlagning sem tekur að lágmarki til
eftirtalinna þátta:

  1. Hún taki til sjávarútvegsfyrirtækja
    sem eiga eða leigja fiskiskip með aflahlutdeildir með ákveðnum
    stærðartakmörkunum sem ákveðin verða á fyrstu stigum verkefnisins.
  2. Hún varpi ljósi á eignarhald eins
    sjávarútvegsfyrirtækis (eða aðila, eins eða fleiri, sem hefur eða hafa yfirráð
    yfir sjávarútvegsfyrirtæki) í öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum.
  3. Hún varpi ljósi á eignarhald eins
    sjávarútvegsfyrirtækis (aðila, eins eða fleiri, sem hefur eða hafa yfirráð yfir
    sjávarútvegsfyrirtæki) í öðrum fyrirtækjum hér á landi, án tillits til þess á
    hvaða sviði þau starfa.
  4. Hún varpi ljósi á áhrifavald
    eigenda sjávarútvegsfyrirtækja í gegnum beitingu atkvæðisréttar og stjórnarsetu
    í fyrirtækjum, sbr. afmörkun í liðum 2 og 3.
  5. Hún auki gagnsæi um stjórnunar- og
    eignatengsl sem rakin eru í liðum 1-4.

Niðurstöður
athugunarinnar verða settar fram í sérstakri skýrslu, en gert er ráð fyrir að
hún liggi fyrir í lok árs 2023.

Fyrir
liggur að yfirsýn og þekking á stjórnunar- og eignatengslum í íslensku
atvinnulífi hefur mikla þýðingu í starfsemi fleiri stofnana en
Samkeppniseftirlitsins, svo sem Fiskistofu, Seðlabanka Íslands og Skattsins. Samhliða
athuguninni er því stefnt að auknu samstarfi þessara stofnana, en í því felst
að umgjörð um eftirlit með stjórnunar- og eignatengslum í íslensku atvinnulífi
verði styrkt, rutt verði úr vegi mögulegum hindrunum í samstarfi hlutaðeigandi
stofnana og skilvirkni í stjórnsýslu á þessu sviði aukin. Er samstarf
framangreindra stofnana til þess fallið að gera þeim betur kleift að sinna
lögbundnum skyldum sínum.

Gerð verður
nánari grein fyrir framangreindu á síðari stigum.

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.