
Samkeppniseftirlitið birtir í dag leiðbeiningar um beitingu 15. gr. samkeppnislaga um undantekningar frá banni við samráði fyrirtækja.
Um áramótin taka gildi grundvallarbreytingar á 15. gr. samkeppnislaga og verklagi í tengslum við undantekningar frá bannreglum 10. og 12. gr. laganna. Í stað fyrirkomulags þar sem undanþága er háð fyrirfram samþykki Samkeppniseftirlitsins verður tekið upp svonefnt sjálfsmatskerfi. Þetta þýðir að frá næstu áramótum munu fyrirtæki sem hyggja á samstarf þurfa að meta sjálf hvort slíkt samstarf stenst samkeppnislög. Sömuleiðis þurfa samtök fyrirtækja að meta hvort starfsemi þeirra uppfylli kröfur samkeppnislaga. Um áramótin fellur því samhliða niður heimild Samkeppniseftirlitsins til þess að veita fyrirtækjum og samtökum fyrirtækja undanþágur frá banni við ólögmætu samráði og samkeppnishömlum. Verður Samkeppniseftirlitinu óheimilt að gefa bindandi álit á því hvort samstarf fyrirtækja uppfylli kröfur 15. gr. laga.
Í þeim leiðbeiningum sem birtar eru í dag er fjallað um þau kjarnaatriði sem hafa þarf til hliðsjónar við mat fyrirtækja á því hvort samkeppnishamlandi samstarf þeirra uppfylli skilyrði 15. gr. laganna. Eru þær liður í því að að auðvelda fyrirtækjum að fara að lögum.
Leiðbeiningar Samkeppniseftirlitsins taka mið af leiðbeiningum Eftirlitsstofnunar EFTA („ESA“) um sjálfsmat fyrirtækja og gilda til fyllingar þeim sem og leiðbeiningum ESA um beitingu samkeppnisreglna gagnvart láréttu and lóðréttu samstarfi fyrirtækja. Ennfremur hefur verið horft til úrlausna úr íslenskri og evrópskri réttarframkvæmd. Við gerð leiðbeininganna aflaði Samkeppniseftirlitið jafnframt umsagna og hélt opinn umræðufund þar sem áhugasömum gafst tækifæri til að koma á framfæri sjónarmiðum.
Leiðbeiningar um beitingu 15. gr. samkeppnislaga má finna hér (pdf).
Gildi eldri undanþáguákvarðana
(Frétt uppfærð 3. mars 2021)
Þær breytingar sem tóku gildi á 15.
gr. samkeppnislaga þann 1. janúar sl. leiddu til þess að þær
undanþágur sem veittar höfðu verið af Samkeppniseftirlitinu á grundvelli eldra
ákvæðis hafa ekki sömu áhrif og áður.
Með gildistöku sjálfsmatskerfis mun
hlutverk Samkeppniseftirlitsins einvörðungu felast í því að hafa “ex post“
eftirlit með því að samráðsbann samkeppnislaga sé ekki brotið. Af þessu leiðir
einnig að eftir 1. janúar 2021 hefur lagagrundvöll skort fyrir undanþágum sem
áður höfðu verið veittar með ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins. Eftir 1. janúar
2021 bar viðkomandi aðilum sem nutu undanþágu skv. hinu eldra kerfi því að taka
upp sjálfsmat í samræmi við lög nr. 103/2020.
Samkeppniseftirlitið telur aftur á
móti málefnalegt að veita fyrirtækjum sem hlotið höfðu undanþágu sem féll úr
gildi um áramótin svigrúm til að axla ábyrgð sína í nýju
lagaumhverfi. Verður því litið svo á að samstarf sem undanþága hafði verið
veitt fyrir uppfylli undantekningarskilyrði 15. gr. samkeppnislaga, án frekari
athugunar, til 1. júlí 2021.
Eftir sem áður mælist
Samkeppniseftirlitið til þess að fyrirtæki taki sér þegar í stað þá ábyrgð á
hendur sem felst í komandi lagabreytingum, þ.e. að leggja sjálft mat á hvort skilyrði fyrir undantekningu frá 10. og 12. gr. samkeppnislaga séu
uppfyllt fyrir viðkomandi samstarfi. Skal það áréttað að í kjölfar
lagabreytinganna mun Samkeppniseftirlitið ekki geta veitt fyrirtækjum bindandi
álit á því fyrir fram hvort tiltekin háttsemi uppfylli lögbundin skilyrði.
Ástæða er til að
vekja sérstaka athygli á því að þessi breyting á verklagi og ábyrgð fyrirtækja
og samtaka fyrirtækja hefur mikla þýðingu varðandi sönnun. Sönnunarbyrði fyrir
því að sjálfsmat fyrirtækja hafi verið fullnægjandi og skilyrði 15. gr. laganna
séu uppfyllt, mun hvíla á viðkomandi fyrirtækjum. Fyrirtæki verða að geta sýnt
fram á að samstarfið hafi þegar frá upphafi, og allan tímann sem það hefur
verið fyrir hendi, uppfyllt öll skilyrði 15. gr. samkeppnislaga og ber þeim að
gera það á grundvelli skriflegra sönnunargagna, sbr. nánari umfjöllun í
leiðbeiningum Samkeppniseftirlitsins um beitingu 15. gr. Hlutverk
Samkeppniseftirlitsins verður þá eingöngu að meta hvort samstarfsaðilum hafi
tekist sönnun um framangreint, komi það til rannsóknar.
Við mat á því hvort
samstarf uppfylli skilyrði 15. gr. samkeppnislaga má, upp að vissu marki, hafa
hliðsjón af þeirri undanþágu sem viðkomandi fyrirtæki hefur áður fengið veitta
og starfað eftir, sem og öðrum eldri ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins og eftir
atvikum úrlausnum áfrýjunarnefndar samkeppnismála og dómstóla.
Leiðbeiningargildi eldri úrlausna er hins vegar takmarkað í sjálfsmatskerfi,
sbr. mgr. 59–61 í leiðbeiningunum. Tekur það einnig til sönnunarkrafna, sbr. mgr.
94.
Það er því mikilvægt að hafa það
hugfast að undanþágur sem Samkeppniseftirlitið veitti á grundvelli eldra
ákvæðis 15. gr. samkeppnislaga geta ekki leyst viðkomandi fyrirtæki undan því
að meta sjálf hvort skilyrðum 15. gr. sé fullnægt, jafnvel þótt um sé að ræða
áframhaldandi og yfirstandandi samstarf sem eftirlitið hefur áður lagt mat á í
tíð eldri 15. gr. samkeppnislaga. Sérstaklega þarf að huga að því hvort Samkeppniseftirlitið hafi sett veitingu á undanþágu tiltekin
skilyrði sem miðuðu að því að breyta viðkomandi samstarfi eða umgjörð þess til
þess að tryggja að það félli undir 1. mgr. 15. gr. samkeppnislaga en
samstarfsfyrirtæki geta ekki gefið sér að samskonar skilyrði og
Samkeppniseftirlitið setti í eldra kerfi geti tryggt að samstarf uppfylli skilyrði
15. gr. samkeppnislaga eftir 1. janúar 2021. Verða samstarfsfyrirtæki í
sjálfsmatskerfi að leggja á það mat miðað við aðstæður hverju sinni hvort
breytingar á umgjörð samstarfsins geri það að verkum að það geti notið
undantekningar frá banni 10. og 12. gr. samkeppnislaga.
"*" indicates required fields