
Sameiginleg afstaða norrænu
samkeppniseftirlitsanna til lyfjaverslunar
Samkeppniseftirlitið hefur beint áliti til
heilbrigðisyfirvalda þar sem vakin er athygli á nýrri skýrslu um samkeppni á
mörkuðum um netverslun lyfja, sem samkeppniseftirlitin á Norðurlöndum hafa
gefið út.
Með skýrslunni mælast norrænu samkeppniseftirlitin til
þess við stjórnvöld viðkomandi landa að lagaumgjörð vegna smásölu lyfja verði
tekin til skoðunar. Sérstaklega er bent á að skilyrði um að heimild til
netverslunar sé bundin við rekstur hefðbundinnar lyfjaverslunar feli í sér
aðgangshindranir sem torveldi samkeppni.
Helstu niðurstöður skýrslunnar eru eftirfarandi:
Norrænu samkeppniseftirlitin eru meðvituð um mikilvægi
þess að tryggja öryggi neytenda við lyfsölu. Skýrslan sýnir hins vegar að til
eru leiðir til að stuðla í senn að öryggi við lyfsölu og virkari samkeppni
neytendum til hagsbóta. Að mati Samkeppniseftirlitsins er tilefni til að
íslensk stjórnvöld á þessu sviði taki til skoðunar framangreind atriði og
umfjöllun í skýrslunni með það að markmiði að auka samkeppni í lyfsölu á
Íslandi.
Álit til heilbrigðisráðherra er aðgengilegt here
Skýrslan er aðgengileg here
Sameiginleg frétt norrænu eftirlitanna á ensku er
accessible here
Background information:
Álitið
er sett fram á grundvelli samkeppnislaga, en samkvæmt þeim skal Samkeppniseftirlitið gæta þess að aðgerðir opinberra
aðila takmarki ekki samkeppni, vekja athygli ráðherra á ákvæðum laga sem ganga
gegn markmiðum samkeppnislaga og benda stjórnvöldum að öðru leyti á leiðir til
að gera samkeppni virkari og auðvelda
aðgang nýrra keppinauta að markaði.
Norrænu samkeppniseftirlitin hafa með sér náið samstarf
sem miðar að því að samnýta þekkingu þeirra og reynslu og vinna saman að
rannsóknum þegar við á. Liður er í samstarfinu er að eftirlitin taka
samkeppnisaðstæður á ýmsum sviðum til sameiginlegrar athugunar og hafa birt um
það allmargar skýrslur. Þessi skýrsla er ein af þeim.
Norrænu samkeppniseftirlitin hafa áður fjallað um
samkeppnisaðstæður á lyfjamarkaði, sbr. sameiginlega skýrslu eftirlitanna frá
árinu 2008, Konkurransemessige
problemstillinger i apotek og legemiddelsektoren
"*" indicates required fields