Logo Competition

The Competition Authority publishes a decision regarding salmon farming mergers

20. December 2022

Samkeppniseftirlitið hefur birt rökstudda decision sína þar sem fram koma sjónarmið varðandi alþjóðlegan samruna SalMar
og NTS, sem hefði meðal annars leitt til samruna Arnarlax og Arctic Fish.

Eins og kom fram í News Samkeppniseftirlitsins í
síðasta mánuði lauk framkvæmdastjórn Evrópusambandsins rannsókn sinni
á samrunanum með skilyrðum um sölu Arctic Fish frá hinu sameinaða fyrirtæki. Lauk
rannsókn framkvæmdastjórnarinnar með sátt við málsaðila í lok október. Rannsókn
Samkeppniseftirlitsins lauk 3. nóvember síðastliðinn.

Það var niðurstaða bæði rannsóknar
framkvæmdastjórnarinnar og Samkeppniseftirlitsins að íslenskur eldislax
tilheyri sérstökum vörumarkaði. Hefði samruninn að óbreyttu leitt til
umtalsverðrar röskunar á samkeppni að því leyti að sameinað fyrirtæki hefði
orðið langstærsti framleiðandi á íslenskum laxi inn á EES-svæðið. Hefði slíkur
samruni getað leitt til hærra verðs og minni valmöguleika fyrir viðskipti með
íslenskan lax.

Til að bregðast við þeirri samkeppnisröskun bauðst
SalMar í viðræðum sínum við framkvæmdastjórn ESB til þess að undirgangast
skilyrði og söluna. Sjá má þessa ákvörðun framkvæmdarstjórnarinnar í máli nr. M.10699 – SALMAR / NTS

Samkeppniseftirlitið telur að framangreint komi að fullu í
veg fyrir þá samkeppnislegu röskun sem af samrunanum hefði annars hlotist
hérlendis. Telur Samkeppniseftirlitið því ekki þörf á íhlutun og að ekki þurfi
að aðhafast frekar vegna samrunans í kjölfar rannsóknarinnar.

Við rannsókn málsins átti Samkeppniseftirlitið gott samstarf
við samkeppnisdeild framkvæmdastjórnar ESB og norska samkeppniseftirlitið.

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.