Logo Competition

The Competition Authority approves Ljósleiðarinn's acquisition of Sýn's core network

29. September 2023

The Competition Authority
hefur birt ákvörðun þar sem kaup Ljósleiðarans ehf. á stofnneti Sýnar hf. eru
heimiluð. Það
er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að samruninn hafi ekki skaðleg áhrif á
samkeppni þannig að þörf eða tilefni sé til íhlutunar vegna viðskiptanna.
Samkeppniseftirlitið gerði athugasemdir við og fékk skýringar frá samrunaaðilum
vegna einstakra atriða í heildsölusamningi félaganna í kjölfar samrunans og
brugðust samrunaaðilar við þeim athugasemdum.

Forsögu
kaupanna má rekja til þess að árið 2022 fékk Ljósleiðarinn rétt til umráða
tveggja ljósleiðaraþráða sem eru í eigu íslenska ríkisins og liggja í kringum
Ísland. Var þetta í kjölfar útboðs ríkisins um nýtingu þráðanna (svokallaðir
NATO-þræðir) og mun gera Ljósleiðaranum kleift að bjóða í heildsölu
fjarskiptaþjónustu sína á landinu öllu en fram til þessa hefur þjónusta
fyrirtækisins að miklu leyti verið takmörkuð við höfuðborgarsvæðið og
sveitarfélög á suðvesturhorni landsins. Fyrir var Míla eina fyrirtækið sem gat
boðið slíka þjónustu á landsvísu og hefur haft fimm ljósleiðaraþræði fyrir sína
starfsemi.

Við
útboð ríkisins missti Sýn þræði sem fyrirtækið hafði haft til umráða og notað
fyrir stofnnet sitt og gat því ekki rekið það áfram nema að takmörkuðu leyti.
Með kaupum Ljósleiðarans á stofnnetinu minnkar starfsemi Sýnar á
heildsölumörkuðum en félagið getur hins vegar beint auknum viðskiptum fyrir
heildsöluvörur til Ljósleiðarans og það fyrirtæki að sama skapi hraðað
uppbyggingu sinni á landsdekkandi fjarskiptaneti.

Það
er mat Samkeppniseftirlitsins að með útbreiðslu Ljósleiðarans verði til fleiri
valkostir í gagnaflutningi um landið allt fyrir fjarskiptafélög og tvö landsdekkandi
grunnnet. Er samruninn liður í þeirri uppbyggingu Ljósleiðarans samkvæmt gögnum
málsins. Er þessi fjölgun valkosta jákvæð bæði fyrir innviðasamkeppni og fyrir
samkeppni á hinum ýmsu heildsölumörkuðum fjarskipta sem einnig mun koma
neytendum og atvinnulífi um hins dreifðu byggðir landsins til góða.

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.