Logo Competition

The Competition Authority seeks further views on the merger of Icelandic Travel Agency and Heimsferðir.

27. October 2021

Samkeppniseftirlitið hefur til meðferðar fyrirhuguð kaup Ferðaskrifstofu Íslands ehf. á rekstri Heimsferða ehf. Um er að ræða aðra tilkynningu fyrirtækjanna vegna samrunans en fyrirtækin drógu til baka fyrri tilkynninguna í kjölfar útgáfu andmælaskjals eftirlitsins og sáttarviðræðna sem skiluðu ekki niðurstöðu, samanber News á vef Samkeppniseftirlitsins 2. september síðastliðinn. Fyrirtækin starfrækja bæði ferðaskrifstofur sem selja ferðir frá Íslandi undir vörumerkjunum Úrval Útsýn, Sumarferðir, Plúsferðir og Heimsferðir.

Samkeppniseftirlitið hefur það hlutverk samkvæmt samkeppnislögum að rannsaka samruna og ber í því sambandi að leggja mat á það hvort samruni fyrirtækja raski samkeppni með umtalsverðum hætti og skaði þar með hagsmuni almennings eða atvinnulífs. Við mat á áhrifum samruna aflar Samkeppniseftirlitið gagna frá aðilum sem eftir atvikum geta verið viðskiptavinir eða keppinautar samrunaaðila, eða tengst mörkuðum málsins á einhvern annan hátt.

Samkeppniseftirlitið veitir hér með þeim sem telja sig hafa hagsmuna að gæta vegna samrunans færi á því að koma að sjónarmiðum vegna hans. Þess er óskað að umsagnir vegna samrunans berist eigi síðar en kl. 16:00, þann 3. nóvember nk. á netfangið magnus@samkeppni.is.

Available here umsagnarbeiðni and Excel skjal til útfyllingar.

Fylgiskjöl:

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.