Logo Competition

The Competition Authority annuls the merger of grocery stores in Akureyri and Reykjanes.

16. May 2019
Snowcap Mountain

Samkeppniseftirlitið hefur ógilt samruna sem áformaður var með kaupum Samkaupa hf. á tveimur verslunum Basko verslana ehf. á Akureyri og í Reykjanesbæ. Er það mat Samkeppniseftirlitsins að kaupin hefðu raskað verulega samkeppni á þessum tilteknu landssvæðum. Þannig hefði eiginlegum keppinautum fækkað úr þremur í tvo á Akureyri og úr fjórum í þrjá í Reykjanesbæ. Hefði samruninn verið neytendum til tjóns, eins og nánar er útskýrt í ítarlegri decision . Meðal annars lét Samkeppniseftirlitið framkvæma neytendakönnun við verslanir á þessum stöðum, til þess að meta samkeppni á viðkomandi svæðum.

Áður hefur Samkeppniseftirlitið heimilað kaup Samkaupa á eignum 12 verslana Basko, sbr. ákvörðun nr. 29/2018. Í því máli, sem varðaði upphaflega 14 verslanir, gaf Samkeppniseftirlitið til kynna strax á fyrstu stigum máls að því sýndist að samruninn hefði ekki skaðleg áhrif á samkeppni á höfuðborgarsvæðinu, en líkur væru á því að samkeppni myndi skaðast á staðbundnum svæðum, þ.e. einkum á Suðurnesjum og á Akureyri.

Rannsókn málsins styrkti þetta mat eftirlitsins. Afréðu samrunaaðilar þá að undanskilja verslanir á Akureyri og í Reykjanesbæ upphaflegum samningi. Á þeim grunni var Samkeppniseftirlitinu kleift að taka afstöðu til kaupa Samkaupa á 12 verslunum Basko, sbr. fyrrgreinda ákvörðun. Í framhaldinu tilkynntu samrunaaðilar að nýju kaup Samkaupa á útistandandi tveimur verslunum Basko. Þau kaup eru til umfjöllunar í máli þessu.

Framangreind kaup Samkaupa á verslunum Basko á höfuðborgarsvæðinu hafa styrkt stöðu Samkaupa sem þriðja stærsta keppinautarins á dagvörumarkaði. Það má hins vegar ekki verða á kostnað neytenda í Reykjanesbæ og á Akureyri. Því var óhjákvæmilegt að ógilda samrunann að því leyti. 

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.