
Samkeppniseftirlitinu barst tilkynning um samruna vegna kaupa Nordic Visitor hf. (hér eftir „Nordic Visitor“) á Iceland Travel ehf. (hér eftir „Iceland Travel“) annars vegar og kaup AU1 ehf. (hér eftir „AU 1“) á Nordic Visitor hins vegar. Here you can find the merger document of the companies, from which confidential information has been removed.
Nordic Visitor er hlutafélag sem starfar á innlendum og erlendum markaði fyrir ferðaskrifstofur sem sjá um skipulagðar alferðir til Norður-Evrópu, þ.á.m. Íslands, annarra Norðurlanda, Svalbarða og Bretlandseyja. Nordic Visitor er eigandi alls hlutafjár í einkahlutafélaginu Terra Nova ehf. (hér eftir „Terra Nova“). Terra Nova er einkahlutafélag sem starfar á innlendum og erlendum markaði fyrir ferðaskrifstofur sem sjá um skipulagðar alferðir til evrópskra endursöluaðila á ferðum til Íslands, Noregs og Finnalnds. Þá selur Terra Nova einnig ferðir beint til neytenda undir vörumerkinu Iceland Tours. Aðalstarfsemi Terra Nova er þó sala á skipulögðum ferðum til endursöluaðila.
Iceland Travel er einkahlutafélag sem starfar á innlendum og erlendum markaði fyrir ferðaskrifstofur sem sjá um skipulagðar alferðir til alþjóðlegra endursöluaðila á ferðum til Íslands og Grænlands. Þá selur Iceland Travel einnig ferðir beint til neytenda. Aðalstarfsemi Iceland Travel er sala á skipulögðum ferðum til endursöluaðila.
AU 1 er eignahaldsfélag í 100% eigu framtakssjóðsins Umbreytingar slhf. (hér eftir „Umbreyting“). AU 1 hefur ekki haft með höndum neinn rekstur frá því það var stofnað og á ekki eignarhlut í öðrum félögum. Umbreyting er framtakssjóður sem leggur áherslu á umbreytingarverkefni. Félagið fjárfestir í hlutafé fyrirtækja og er í eigu stofnana- og einkafjárfesta. Alfa er bæði rekstrar- og ábyrgðaraðili Umbreytingar, ásamt því að gegna hlutverki framkvæmdastjóra.
In accordance with Article 17(c) of the Competition Act No. 44/2005, the investigation by the Competition Authority focuses on whether the merger of the companies hinders effective competition by creating or strengthening a dominant position, or otherwise significantly distorts competition, such that the merger requires potential intervention.
Samkeppniseftirlitið kallar hér með eftir athugasemdum og sjónarmiðum allra hagsmunaaðila og annarra sem kunna að vilja tjá sig um samrunann, svo sem um möguleg jákvæð eða neikvæð áhrif hans á samkeppni í ferðaþjónustu.
Er þess óskað að umsagnir berist með tölvupósti á samkeppni@samkeppni.is innan tveggja vikna eða í síðasta lagi 23. júlí nk.
"*" indicates required fields