Logo Competition

The Competition Authority is seeking views on Ljósleiðarinn's acquisition of the core network and related equipment from Sýn.

23. March 2023

Samkeppniseftirlitið hefur til rannsóknar fyrirhuguð kaup
Ljósleiðarans ehf. á stofnneti og tengdum búnaði af Sýn hf. Fullnægjandi
samrunatilkynning barst Samkeppniseftirlitinu 15. mars síðastliðinn. Afrit
samrunatilkynningar án trúnaðarupplýsinga má finna neðst í þessari frétt.

Ljósleiðarinn er fjarskiptafyrirtæki sem starfar á íslenskum
heildsölumörkuðum fyrir fjarskiptaþjónustu. Kjarnastarfsemi fyrirtækisins felst
í rekstri ljósleiðaranets og sölu á vörum og þjónustum á ljósleiðaraneti
Ljósleiðarans til fjarskiptafélaga að sögn félagsins.

Samruninn leiðir til þess að Ljósleiðarinn eignast stofnnet
Sýnar en auk þess hafa samrunaaðilar undirritað þjónustusamning um heildsöluviðskipti.

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á samkeppnislegum áhrifum
samrunans beinist einkum að áhrifum samrunans á samkeppni og hvort hann feli í
sér aukna sameiginlega hlutdeild samrunaaðila á tilteknum sviðum fjarskipta eða
að samkeppni raskist að öðru leyti.

Þeim sem þess óska er hér með boðið að koma á framfæri
skriflegum sjónarmiðum um samrunann og aðrar athugasemdir sem geta skipt máli
við rannsóknina.

Er óskað eftir að slík sjónarmið berist
Samkeppniseftirlitinu eigi síðar en föstudaginn 31. mars á
netfangið samkeppni@samkeppni.is.

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.