
Samkeppniseftirlitinu hefur borist samrunatilkynning vegna kaupa Festi
fasteigna ehf. á matvöruverslun Ísborgar verslana ehf. að Hallveigarstíg 1
Reykjavík. Verslunin hefur verið rekin undir heitinu Super1. Festi fasteignir
er dótturfélag Festi hf. sem á og rekur m.a. verslanir Krónunnar og N1. Hyggst
Festi reka verslun undir merkjum Krónunnar í húsnæðinu. Samhliða
samrunatilkynningunni hefur Festi óskað eftir undanþágu frá ákvæði
samkeppnislaga sem bannar framkvæmd samruna á meðan eftirlitið fjallar um hann.
Beiðnin er rökstudd m.a. með vísan til þess að bið eftir endanlegri niðurstöðu
myndi líklega leiða til röskunar á rekstri verslunarinnar vegna bágrar
fjárhagsstöðu seljanda.
Miðað við framkomin gögn er það mat Samkeppniseftirlitsins að ljóst sé að
fjárhagsleg staða Ísborgar verslana ehf. sé slæm og fyrirsjáanlegt sé að
fyrirtækið geti ekki viðhaldið rekstri verslunarinnar að Hallveigarstíg 1 til
lengri tíma. Af þeim sökum er hætta á því að samkeppni á dagvörumarkaði í næsta
nágrenni verslunarinnar muni verða fyrir a.m.k. tímabundnum skaða verði ekki
veitt undanþága til þess að framkvæma samrunann. Til þess að tryggja
framangreint er að mati Samkeppniseftirlitsins mikilvægt að tryggt sé að
rekstri verslunarinnar sé viðhaldið með fullnægjandi hætti á þeim tíma sem
rannsókn eftirlitsins á samrunanum tekur. Það er því skilyrði og forsenda
undanþágunnar að tryggt sé að verslunin sé í rekstri á tímabilinu og að
samkeppni og neytendur verði ekki fyrir skaða vegna framkvæmdar samrunans. Það
er jafnframt skilyrði undanþágunnar að samrunaaðilar ábyrgist að ekki verði
gripið til aðgerða sem geri það ómögulegt að vinda ofan af samrunanum komi til
þess að það þurfi að ógilda hann.
Samkeppniseftirlitið telur því forsendur til þess að veita undanþáguna með
framangreindum skilyrðum.
Þeim sem vilja koma á framfæri athugasemdum vegna samrunans er bent á að
senda slíkar athugasemdir á netfangið samkeppni@samkeppni.is fyrir 23. júní nk.
Background information
Aðdraganda þessa máls má rekja til þess að með sátt við Haga hf., dags. 11.
september 2018, samþykkti Samkeppniseftirlitið samruna félagsins við
Olíuverzlun Íslands hf. og DGV ehf., sbr. ákvörðun nr. 9/2019. Eitt af skilyrðum sáttarinnar var að Hagar myndu
selja frá sér tilteknar verslanir Bónuss á höfuðborgarsvæðinu. Kaupandi þeirra
verslana var Ísborg ehf. móðurfélag Ísborgar verslana ehf. Vorið 2019 hóf fyrirtækið
rekstur á þremur verslunum undir vörumerkinu Super1 sem áður voru
Bónusverslanir, þ.e. á Smiðjuvegi í Kópavogi og Faxafeni og Hallveigarstíg í
Reykjavík. Rekstur þeirra gekk ekki sem skyldi og hefur Ísborg þegar lokað
verslununum á Smiðjuvegi og Faxafeni.
Í tengslum við yfirtöku á verslunum Haga undirgekkst Ísborg skilyrði með
sátt við Samkeppniseftirlitið, dags. 29. nóvember 2018, sem ætlað var að
tryggja rekstur lágvöruverðsverslana á staðsetningunum í tiltekinn
lágmarkstíma. Var jafnframt kveðið á um það í sáttinni að ef eignirnar yrðu
seldar til þriðja aðila á þessu tímabili þyrfti kaupandi þeirra að uppfylla
sömu skyldur og samkvæmt sáttinni við Haga frá 11. september 2018.
Af þeim sökum eru kaup Festi á verslun Ísborgar að Hallveigarstíg ekki
aðeins háð samrunaeftirliti samkvæmt 17. gr. samkeppnislaga heldur jafnframt
því að óháður kunnáttumaður og Samkeppniseftirlitið meti Festi sem hæfan
kaupanda í samræmi við skilyrði framangreindra sátta. Þar er m.a. kveðið á um
kaupandi skuli teljast óháður Högum og reka lágvöruverðsverslun.
Óháður kunnáttumaður og Samkeppniseftirlitið lögðu mat á og töldu Festi
hæfan kaupanda í skilningi sáttarinnar frá 29. nóvember 2020.
Af framangreindu er ljóst innkoma nýs aðila á dagvörumarkaði, á grundvelli
þeirra skilyrða sem sett voru með fyrrgreindri sátt við Haga, hefur ekki gengið
sem skyldi. Samkeppniseftirlitið mun taka til nánari skoðunar hvaða lærdóm megi
draga af þessu. Jafnframt mun eftirlitið stuðla að því að umrædd skilyrði nái
þrátt fyrir þetta þeim tilgangi sínum að efla og verja umrædda samkeppni.
Tengd skjöl
Samrunaskrá
Undanþága vegna framkvæmdar samruna
Mat á hæfi Festi sem kaupanda
"*" indicates required fields