Logo Competition

Dialogue on Competition: Public discussion on the draft guidelines on the application of Article 15 of the Competition Act

26. November 2020
Snowcap Mountain

Samkeppniseftirlitið boðar til opins umræðufundar mánudaginn
30. nóvember nk. um drög eftirlitsins að leiðbeiningum um beitingu 15. gr.
samkeppnislaga, en drögin hafa verið birt til review á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins.

Leiðbeiningunum er ætlað að nýtast fyrirtækjum við mat á
því hvort samstarf þeirra á milli uppfylli skilyrði 15. gr. laganna, en frá og
með næstu áramótum mun ábyrgð á þessu mati hvíla alfarið á þeim fyrirtækjum sem
hyggja á samstarf.

Öllum áhugasömum hefur verið boðið að koma á framfæri
sjónarmiðum og ábendingum um leiðbeiningarnar en frestur til þess rennur út
þann 27. nóvember nk.

Fundurinn verður haldinn í gegnum fjarfundabúnað og fer fram
mánudaginn 30. nóvember nk. kl. 14:00. Áhugasömum gefst þar tækifæri til
þess að taka þátt í umræðum um fyrirliggjandi drög að leiðbeiningum og taka
þannig þátt í frekari mótun þeirra, fylgja eftir ábendingum sínum eða koma að frekari
sjónarmiðum.

Þátttakendur
eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig á fundinn með því að senda tölvupóst á samkeppni@samkeppni.is fyrir kl. 11:00
þann 30. nóvember nk. Hlekkur á fjarfundinn verður sendur öllum skráðum
þátttakendum.

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.