Logo Competition

Economist position at the Competition Authority now open for applications

18. April 2023

Samkeppniseftirlitið auglýsir eftir öflugum hagfræðingi í fullt starf sem hefur brennandi áhuga á samkeppnismálum. Viðkomandi mun í störfum sínum vinna náið með aðalhagfræðingi og sérfræðingum stofnunarinnar. Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2023 en sótt er rafrænt um starfið í gegnum starfatorg.is.

Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda í starfið og einkunnir úr háskólanámi. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Samkeppniseftirlitið fylgist með samkeppni fyrirtækja í síbreytilegu atvinnulífi landsins. Eftirlitið spornar við óhæfilegum hindrunum og takmörkunum á frelsi í atvinnurekstri, vinnur gegn skaðlegri fákeppni og samkeppnishömlum og auðveldar aðgang nýrra keppinauta að markaðnum.

Hjá Samkeppniseftirlitinu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga sem hefur brennandi áhuga á samkeppnismálum og nær árangri í starfi. Samkeppniseftirlitið leggur áherslu á að starfsmenn þess fái tækifæri til að sinna spennandi verkefnum, þróast í starfi og viðhalda jafnvægi milli vinnu og einkalífs. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greiningarvinna og þátttaka í skrifum á skýrslum og ákvörðunum
  • Söfnun gagna og tölfræðileg úrvinnsla
  • Miðlun hagfræðilegrar þekkingar við rannsókn mála
  • Samskipti við hagsmunaaðila
  • Þátttaka í öðru þróttmiklu starfi Samkeppniseftirlitsins á sviði hagfræði
  • Möguleiki á þátttöku í erlendu samstarfi

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf í hagfræði
  • Gott vald á aðferðum til hagrannsókna og notkun hugbúnaðar við tölfræðigreiningar og úrvinnslu gagna
  • Þekking á atvinnuvega- eða vinnumarkaðshagfræði er kostur
  • Reynsla af samkeppnismálum er kostur
  • Good analytical skills and an organised approach to work
  • Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna
  • Hæfni í samskiptum og geta til að vinna undir álagi
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta

Nánari upplýsingar veita:

Valur Þráinsson, aðalhagfræðingur – valur@samkeppni.is – 585-0700
Karítas Margrét Jónsdóttir, rekstrarstjóri – karitas@samkeppni.is – 585-0700

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.