Logo Competition

Commercial Property Lettings – Market Analysis

29 November 2024
Snowcap Mountain

Samkeppniseftirlitið hefur nú birt rit nr. 6/2024 , Market analysis – market for commercial property rental. Í  skjalinu er að finna greiningu á markaði fyrir útleigu atvinnuhúsnæðis.

Greiningin byggir aðallega á samrunarannsóknum Samkeppniseftirlitsins veturinn 2023 til 2024 í málum sem lauk án ákvörðunar vegna fyrirhugaðra samruna fasteignafélaga sem ekki varð af.

Umræddar rannsóknir voru ítarlegar, þ.m.t. gagnaöflun Samkeppniseftirlitsins um starfsemi fasteignafélaga og samkeppni þeirra.

Í ljósi hlutverks Samkeppniseftirlitsins samkvæmt samkeppnislögum og í leiðbeiningarskyni er markaðsgreiningin birt í þeirri von um að hún nýtist markaðsaðilum og öðrum áhugasömum. Í ritinu er einnig að finna leiðbeiningar til fasteignafélaga og ráðgjafa þeirra. Umfjöllun um samkeppnisaðstæður á markaði í greiningunni eru eins og þær blöstu við á þeim tíma sem rannsóknir fóru fram.

Hægt er að nálgast markaðsgreininguna hér. Í viðauka við ritið er einnig að finna niðurstöðuskýrslu Gallup vegna könnunar sem framkvæmd var hjá viðskiptavinum fasteignafélaga.

Related content

Search

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.