15. December 2022
Í Morgunblaðinu í dag er viðtal við Sævar Þór Jónsson,
lögmann matvælafyrirtækisins Gunnars majóness, þar sem hann finnur að
málsmeðferð Samkeppniseftirlitsins við rannsókn á kaupum Kaupfélags
Skagfirðinga á fyrirtækinu.
Fram kemur að í maí sl. hafi fyrirtækið verið selt
og viðskiptin í kjölfarið tilkynnt til eftirlitsins. Haft er eftir honum að nú
þegar um sex mánuðir séu liðnir hafi kaupin enn ekki verið samþykkt. Þá er haft
eftir honum að málið hafi tafist úr hófi fram auk þess sem skriffinnskan og
gagnaöflunin sem Gunnars majónes sé krafið um sé óþarflega mikil. Velti hann því
fyrir sér hvort þetta ferli sé hálfóyfirstíganlegt fyrir lítil fyrirtæki.
Í þágu upplýstrar umræðu um meðferð samkeppnismála er
óhjákvæmilegt að taka eftirfarandi fram:
- Samrunatilkynning vegna
málsins barst Samkeppniseftirlitinu þann 20. júlí sl., en þá hófst meðferð
málsins. Því hefur meðferð málsins ekki tekið sex mánuði og er málið rekið
innan lögbundinna tímafresta.
- Við meðferð málsins
hefur eftirlitið ítrekað haldið stöðufundi þar sem aðilar máls hafa verið
upplýstir um stöðu málsins. Eru slíkir fundir að jafnaði haldnir í þágu
viðkomandi fyrirtækja svo þau geti sem fyrst metið stöðu málsins.
- Á stöðufundi í byrjun
október var aðilum kynnt frummat Samkeppniseftirlitsins um möguleg skaðleg
áhrif samrunans og þeim boðið að koma sjónarmiðum á framfæri. Frá þeim
tíma hefur meðferð málsins helgast af viðbrögðum samrunaaðila við frummati
eftirlitsins. Viðleitni eftirlitsins til að einfalda meðferð málsins hefur
ekki borið árangur.
- Samkeppniseftirlitið bíður nú
sjónarmiða sem samrunaaðilar hafa boðað, eigi síðar en 16. desember samkvæmt
veittum fresti.