
The Competition Authority
hefur birt áherslur eftirlitsins til næstu þriggja ára. Eru áherslurnar
leiðbeinandi við ákvarðanatöku um forgangsröðun verkefna og aðgerða í starfi
stofnunarinnar. Einnig taka þær mið af stefnumótun og markmiðum sem sett eru
fram í fjármálaáætlun ríkisins á hverjum tíma.
Við mótun
áherslna er horft til efnahagsaðstæðna hverju sinni, aðstæðna á mörkuðum, reynslu
liðinna ára og annarra áskorana sem fram undan eru. Þá er einnig horft til
þróunar lagaumhverfis samkeppnismála hér á landi, alþjóðlegra skuldbindinga og
áherslna á sviði samkeppnismála innan evrópska efnahagssvæðisins og í öðrum
ríkjum.
Áherslur í
eftirliti stofnunarinnar skiptast í meginatriðum í eftirfarandi meginverkefni:
–
Að vinna gegn banni við samkeppnishömlum
(ólögmætu samráði og misnotkun á markaðsráðandi stöðu.
–
Að vinna gegn samkeppnishamlandi samþjöppun og
hafa yfirsýn yfir stjórnunar- og eignatengsl.
–
Að vinna gegn samkeppnishindrunum af hálfu hins
opinbera.
–
Að varpa ljósi á aðrar samkeppnishamlandi
aðstæður á samkeppnismörkuðum, með markaðsrannsóknum.
–
Að auka þekkingu stjórnenda fyrirtækja og
almennings á samkeppnisreglum.
Undir framangreindum
verkefnaflokkum eru reifuð helstu áhersluatriði sem m.a. taka mið af mikilvægi
einstakra markaða fyrir almannahagsmuni og öðrum áskorunum sem íslenskt
atvinnulíf stendur frammi fyrir.
Áherslurnar eru endurskoðaðar á
hverju hausti.
Áherslur
fyrir árin 2025-2027 eru aðgengilegar here .
"*" indicates required fields