Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

Fréttatilkynning – Námsgagnastofnun: Lagaumhverfi og starfshættir fara gegn markmiði samkeppnislaga

20. October 2006
Snowcap Mountain

Samkeppniseftirlitið beinir því til menntamálaráðherra að beita sér fyrir endurskoðun á lögum og reglum sem varða útgáfu og sölu Námsgagnastofnunar á kennsluefni fyrir grunnskólanema með hliðsjón af markmiði og ákvæðum samkeppnislaga.

Eftirlitið beinir fyrirmælum til Námsgagnastofnunar um fjárhagslegan aðskilnað hjá stofnuninni á milli annars vegar lögbundins rekstrar og hins vegar rekstrar sem er í samkeppni við einkaaðila.

Sjálfstæðir útgefendur námsefnis hafa kvartað til samkeppnisyfirvalda yfir því að starfshættir Námsgagnastofnunar og lagaumhverfi hennar séu samkeppnishindrandi. Námsgagnastofnun standi í vegi fyrir því að grunnskólar landsins geti nýtt sér námsefni sem samið er og gefið út af öðrum en stofnuninni. Með sk. kvótakerfi sem Námsgagnastofnun breyti fyrirvaralaust og að eigin geðþótta hafi stofnunin gert sjálfstætt starfandi höfundum og útgefendum kennsluefnis illmögulegt að koma efni sínu á framfæri við grunnskólana. Jafnframt kvarta áðurnefndir útgefendur námsefnis yfir því að Námsgagnastofnun hafi það kennsluefni sem hún framleiðir fyrir grunnskóla til sölu á almennum markaði á verði sem ekki sé unnt að keppa við.

Það er mat Samkeppniseftirlitsins að þær samkeppnishindranir sem eru á markaðnum fyrir útgáfu og sölu kennsluefnis fyrir grunnskólanemendur megi að miklu leyti rekja til þess lagaumhverfis sem markaðurinn býr við. Lögin um Námsgagnastofnun eru frá árinu 1990 og reglugerð frá árinu 1980. Hvort tveggja tók gildi nokkru fyrir gildistöku samkeppnislaga. Þess utan viðhefur Námsgagnastofnun ekki fjárhagslegan aðskilnað í skiningi samkeppnislaga á milli þeirrar lögbundnu starfsemi sinnar annars vegar að sjá grunnskólum landsins fyrir náms- og kennslugögnum og þeirrar starfsemi hins vegar sem felst í að selja útgefið efni stofnunarinnar á almennan markað í samkeppni við einkaaðila.

Í lagaumhverfi og reglum sem á beinan hátt varða útgáfu og sölu á kennsluefni fyrir grunnskólanema virðist í reynd unnið gegn því að samkeppni fái þrifist í umræddri útgáfu og sölu. Lögin og reglurnar sem hér um ræðir eru í mótsögn við markmið samkeppnislaga. Þá eru starfshættir Námsgagnastofnunar því marki brenndir að draga úr og torvelda samkeppni. Með þessu fara grunnskólar landsins og nemendur þeirra á mis við ávöxt virkrar samkeppni. Virk samkeppni leiðir til þess að kaupendur fá meiri og betri vöru og þjónustu en ella fyrir lægra verð. Hún þrýstir á alla þá sem á markaðnum starfa að draga úr kostnaði og auka gæði þess sem þeir selja.

Nokkrir aðilar í einkarekstri hafa reynt að hasla sér völl við að semja, gefa út og selja kennsluefni fyrir grunnskólanema þrátt fyrir þær erfiðu aðstæður sem lagaumhverfið skapar þeim. Vegna aðstæðna og vegna starfshátta Námsgagnastofnunar sem hér er lýst hefur þessum útgefendum námsefnis orðið lítt ágengt. Því hafa grunnskólar og nemendur þeirra á takmarkaðan hátt notið hags af samkeppninni. Að mati Samkeppniseftirlitsins er ekki ástæða til að ætla annað en að samkeppni geti þrifist við útgáfu og sölu kennsluefnis fyrir grunnskólanema verði lagaumhverfi lagað að breyttum háttum. Slík samkeppni er til þess fallin að stuðla að fjölbreyttara kennsluefni og auka gæði þess.

Með vísan til framanritaðs beinir Samkeppniseftirlitið því til menntamálaráðherra að beita sér fyrir að lög og reglur sem varða Námsgagnastofnun verði teknar til skoðunar með hliðsjón af samkeppnislögum. Þá er Námsgangastofnun gert að laga starfshætti sína að samkeppnislögum.

Decision of the Competition Authority nr. 40/2006, Erindi er varða samkeppnishætti Námsgagnastofnunar við útgáfu og sölu kennsluefnis fyrir grunnskólanemal.

Álit Samkeppniseftirlitsins nr. 2/2006, Erindi er varða samkeppnishamlandi starfshætti og lagaumhverfi Námsgagnastofnunar við útgáfu og sölu kennsluefnis fyrir grunnskólanema.

Other news

All news and articles

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.