Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

Samkeppniseftirlitið tekur bráðabirgðaákvörðun vegna ætlaðra brota Símans

21. May 2010
Snowcap Mountain

The Sim logoÞann 21. apríl sl. framkvæmdi Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Skiptum hf., Símanum hf., Mílu ehf. og Tæknivörum ehf. Til rannsóknar er m.a. hvort Síminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sínu með samkeppnishamlandi aðgerðum sem einkum beindust gegn Nova.

Gögn sem fundust í húsleitinni hafa leitt til þess að Samkeppniseftirlitið hefur í dag tekið ákvörðun til bráðabirgða. Í 3. mgr. 16. gr. samkeppnislaga kemur fram að Samkeppniseftirlitinu sé heimilt að taka ákvarðanir til bráðabirgða um einstök mál ef: „…sennilegt þykir að sú háttsemi eða þær aðstæður sem til athugunar eru fari gegn ákvæðum samkeppnislag …“. Einnig er það skilyrði að málið þoli ekki bið. Í slíkum ákvörðunum er því ekki lagt endanlegt mat á hvort um ólögmætar aðgerðir sé að ræða. Málið er áfram til rannsóknar og verður tekin lokaákvörðun í því þegar rannsókninni lýkur.

Nova hefur upplýst að fyrirtækið hafi orðið þess áskynja að Síminn hafi undanfarið beint sérstökum tilboðum til viðskiptavina Nova sem teljist til meiri stórnotenda en almennt gerist. Hafi Síminn hringt í viðkomandi notendur og boðið þeim nýja en óopinbera áskriftarleið. Telur Nova að um sé að ræða misnotkun á trúnaðargögnum um símnotkun sem verða til við samtengingu fjarskiptaneta Símans og Nova. Síminn hefur mótmælt því að hafa brotið gegn samkeppnislögum.

Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins er komist að þeirri niðurstöðu að sennilegt sé að Síminn hafi gripið til umfangsmikilla ólögmætra aðgerða í því skyni að ná mikilvægum viðskiptavinum frá Nova með sértækum verðlækkunum og óeðlilegri notkun á trúnaðarupplýsingum um símnotkun viðskiptavina Nova. Útbjó Síminn lista sem hefur að geyma sundurgreinanlegar upplýsingar um mörg þúsund viðskiptavina Nova. Geyma umræddir listar ekki aðeins upplýsingar um símanúmer og nöfn viðkomandi viðskiptavina Nova heldur jafnframt kennitölur, heimilsföng og í mörgum tilvikum starfsheiti þeirra. Auk þess koma fram upplýsingar um fjölda símtala hvers og eins, lengd þeirra í mínútum eða sekúndum og lengd meðalstímtals. Á grundvelli þessara upplýsinga gat Síminn beitt sér gagnvart mikilvægum viðskiptavinum Nova. Er talið í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til bráðabirgða að sennilegt sé að um sé að ræða misnotkun Símans á markaðsráðandi stöðu sinni og brot á 11. gr. samkeppnislaga.

Síminn hefur lýst því yfir gagnvart Samkeppniseftirlitinu að aðgerðir gegn Nova séu hættar og að fyrirtækið muni ekki nota umræddar upplýsingar um símnotkun viðskiptavina keppinauta sinna ef eftirlitið telji að um lögbrot geti verið að ræða. Er í bráðabirgðaákvörðuninni lagt til grundvallar að Síminn muni standa við þessar yfirlýsingar og ekki grípa til umræddra aðgerða meðan á málsmeðferð Samkeppniseftirlitsins stendur. Samkeppniseftirlitið beinir því hins vegar til viðskiptavina keppinauta Símans að tilkynna eftirlitinu hið fyrsta ef þeir fá tilboð frá Símanum sem virðast byggja á upplýsingum um farsímanotkun þeirra.

Sjá nánar ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til bráðabirgða No. 2/2010.

Other news

All news and articles

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.