Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

Samkeppniseftirlitið heimilar samstarf vegna samkomulags um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja

16. December 2010
Snowcap Mountain

Samstarfinu sett ítarleg skilyrði

Krone coinsSamkeppniseftirlitið hefur í dag birt ákvörðun þar sem heimilað er samstarf vegna samkomulags um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja, en samkomulagið var undirritað í gær. Samningsaðilar eru fjármálafyrirtæki og hagsmunasamtök atvinnulífsins, auk fjármálaráðuneytis og efnahags- og viðskiptaráðuneytis.

Samstarf keppinauta á markaði er bannað samkvæmt 10. gr. samkeppnislaga. Samkvæmt 15. gr. sömu laga getur Samkeppniseftirlitið veitt undanþágur frá því banni og bundið slíkt samstarf skilyrðum.

Að mati Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja hefur miðað hægt. Í umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins No. 2/2009, Bankar og endurskipulagning fyrirtækja – Stefnumörkun, sem gefið var út í desember 2009, er sérstaklega bent á að hagfræðileg rök og reynsla annarra þjóða sýni að nauðsynlegt sé að bregðast hratt við skuldavanda rekstrarhæfra fyrirtækja. Það sé því neytendum og atvinnulífinu til hagsbóta að bankar afskrifi eða minnki skuldir rekstrarhæfra fyrirtækja.

Meðal annars á þessum grunni telur Samkeppniseftirlitið rétt að veita fjármálafyrirtækjum og hagsmunasamtökum fyrirtækja undanþágu til samstarfs vegna samkomulagsins.

Á hinn bóginn lítur Samkeppniseftirlitið svo á að samstarf af þeim toga sem samkomulagið kveður á um geti, einkum til lengri tíma, gefið keppinautum á fjármálamarkaði færi á að samræma verð, viðskiptakjör og vöruframboð til skaða fyrir viðskiptavini og neytendur. Til þess að koma í veg fyrir þetta telur Samkeppniseftirlitið óhjákvæmilegt að setja samstarfinu eftirfarandi skilyrði:

  • Að fjármálafyrirtæki sé þrátt fyrir samkomulagið heimilt að veita viðskiptavinum sínum betri kjör og taka upp viðmið sem eru þeim hagfelldari.
  • Skýrt er kveðið á um að undanþágan veitir ekki rétt til nánari samræmingar á verði og viðskiptakjörum en kveðið er á um í samkomulaginu. Slíkar breytingar á samkomulaginu þarf að bera undir Samkeppniseftirlitið fyrirfram.
  • Settar eru skýrar reglur um samstarf á grundvelli samkomulagsins. Þannig á fulltrúi stjórnvalda að vera viðstaddur samstarfsfundi sem skulu bókaðir. Jafnframt er nauðsynlegt að hvert fjármálafyrirtæki fyrir sig grípi til ráðstafana til að stuðla að því að samkeppnislegur skaði stafi ekki af því samstarfi sem leiðir af samkomulaginu.
  • Undanþágan er tímabundin og gildir til ársloka 2011. Skal við lok hennar gera grein fyrir framkvæmd samstarfsins og hvernig tryggt sé að samstarfinu ljúki.
  • Undanþágan veitir einungis fjármálafyrirtækjum rétt til samstarfs sem ella færi gegn 10. gr. samkeppnislaga. Öðrum aðilum samkomulagsins, s.s. Samtökum atvinnulífsins, er ekki veitt undanþága til samstarfs á sínum vettvangi.

Other news

All news and articles

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.