Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins vegna samruna svínabúa

3 February 2011
Snowcap Mountain

 

Mynd af svíniSamkeppniseftirlitið hefur haft til meðferðar samruna sem felst í kaupum Stjörnugríss hf. á eignum dótturfélaga Arion banka, þ.e. Rekstrarfélagsins Brautar ehf. og LS2 ehf. Þau fyrirtæki hafa haft með höndum rekstur svínabúa og rak Braut svínabú á Brautarholti á Kjalarnesi, en LS2 fór með rekstur svínabúa á Hýrumel og á Stafholtsveggjum í Borgarfirði sem áður tilheyrðu fyrirtækinu Grísagarði. Þessi svínabú höfðu komist í eigu Arion banka eftir að fyrirtækin sem ráku þau urðu gjaldþrota. Þessar eignir voru seldar Stjörnugríss eftir að bankinn hafði leitað tilboða í þær.

Samkeppniseftirlitið hefur nú lokið umfjöllun sinni um samrunann eftir ítarlega rannsókn. Í ákvörðun eftirlitsins, sem birt er í dag, er komist að þeirri niðurstöðu að kaup Stjörnugríss á svínabúunum myndi markaðsráðandi stöðu félagsins í svínarækt og styrki markaðsráðandi stöðu félagsins á markaðnum fyrir slátrun á svínum. Þetta, ásamt styrkri stöðu samstæðunnar á eggjamarkaði, styrkir einnig stöðu hennar gagnvart fóðurseljendum, kjötvinnslum og dagvöruverslunum.

Undir rekstri málsins var því haldið fram af samrunaaðilum að heimila yrði samrunann vegna reglna samkeppnisréttarins um fyrirtæki á fallandi fæti (e. failing firm defence). Viðurkennt er að slík aðstaða fyrirtækis geti leitt til þess að heimila beri samruna. Ástæðan er sú að í slíkum tilvikum stafa samkeppnishömlurnar ekki af samrunanum sem slíkum heldur af erfiðri stöðu hins yfirtekna fyrirtækis.

Samkeppniseftirlitið hefur metið stöðu umræddra svínabúa og aðstæður í svínarækt en verulegir erfiðleikar hafa verið í þeirri grein. Jafnframt var söluferli Arion banka rannsakað og metið hvort raunhæfur möguleiki væri á sölu svínabúanna til annarra aðila en Stjörnugríss. Auk þess sem leitast var við að meta hver samkeppnisleg áhrif málsins yrðu, annars vegar ef samruninn gengi eftir og hins vegar ef hann gengi ekki eftir. Að mati Samkeppniseftirlitsins er ljóst að kaup Stjörnugríss á svínabúunum skapar umtalsverðar samkeppnishömlur. Með vísan til framkominna gagna og upplýsinga er það hins vegar mat Samkeppniseftirlitsins að sú breyting á markaðnum sem felst í samrunanum sé óhjákvæmileg miðað við þær aðstæður sem uppi eru í málinu. Því er ekki unnt samkvæmt samkeppnislögum að ógilda samrunann.

Framangreind rannsókn Samkeppniseftirlitsins sýnir að markaðurinn fyrir svínarækt og aðrir tengdir markaðir eru mjög viðkvæmir í samkeppnislegu tilliti og með samrunanum hefur Stjörnugrís náð mjög sterkri stöðu. Eftirlitið hyggst sökum þessa nýta sér ákvæði samkeppnislaga sem leyfir reglubundna vöktun á tilteknum mörkuðum. Samkvæmt því er unnt að skylda markaðsráðandi fyrirtæki til að tilkynna fyrirfram um allar mikilvægar breytingar á háttsemi þess á markaði, t.d. breytingar á viðskiptaskilmálum eða afsláttum. Er tilgangur þessa úrræðis m.a. að vinna gegn því að markaðsráðandi fyrirtæki valdi keppinautum eða viðskiptavinum samkeppnislegu tjóni.

See the decision for details nr. 3/2011.

Other news

All news and articles

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.