
Við vinnslu umræðuskjals No. 1/2011, Competition in the banking market, óskaði Samkeppniseftirlitið eftir upplýsingum frá Seðlabanka Íslands um útlán einstakra banka og sparisjóða. Seðlabankinn hafnaði þeirri beiðni. Samkeppniseftirlitið ítrekaði beiðni sína og hefur í framhaldinu tekið ákvörðun um að leggja dagsektir á Seðlabanka Íslands, að fjárhæð 1,5 milljónir króna á dag, til þess að knýja á um gagnaskilin. Þegar umræddar upplýsingar liggja fyrir mun Samkeppniseftirlitið uppfæra umræðuskjalið á heimasíðu sinni. Nánar er fjallað um þetta í ákvörðun nr. 14/2011.
"*" indicates required fields