Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

Aukin samkeppni er forsenda framleiðniaukningar

31. October 2012
Snowcap Mountain

Skýrsla McKinsey

Merki McKinsey & CompanySamkeppniseftirlitið tekur undir með ráðgjafarfyrirtækinu McKinsey & Company sem segir í skýrslu sinni um hagvaxtarmöguleika á Íslandi („Charting a Growth Path for Iceland“) að samkeppni sé lykill að aukinni framleiðni. Segir í skýrslunni að samkeppnin stuðli að hagkvæmri nýtingu framleiðsluþátta, hvetji stjórnendur til að hagræða í rekstri og leiði til nýrra hugmynda, nýsköpunar og tækninýjunga.

Í skýrslu McKinsey kemur fram að hlutur innlendrar þjónustustarfsemi í landsframleiðslu sé 65%. Þessi starfsemi sé að mestu varin fyrir erlendri samkeppni og framleiðni sé lág. Til að bæta lífskjör á Íslandi sé nauðsynlegt að auka framleiðni í innlendri þjónustustarfsemi. Það sé best gert með því að leyfa samkeppni að njóta sín, opna markaði og fá inn erlenda keppinauta. McKinsey vísar sérstaklega í því efni til skýrslna Samkeppniseftirlitsins nr. 2/2008 Öflug uppbygging markaða and nr. 2/2011 Samkeppnin eftir hrun þar sem fram koma yfir 100 tillögur að opnun einstakra markaða. McKinsey hvetur stjórnvöld og hagsmunaðila til að vinna með Samkeppniseftirlitinu að því að opna markaði með þeim hætti sem lýst er í framangreindum skýrslum eftirlitsins. Væntir Samkeppniseftirlitið þess að bæði opinberir aðilar og fyrirtæki taki vel í þessi tilmæli og leggist á eitt með eftirlitinu að gera nýjum og minni fyrirtækjum kleift að hefja starfsemi og dafna í íslensku atvinnulífi.

McKinsey leggur í skýrslu sinni sérstaka áherslu á að miklar skuldir fyrirtækja og skortur á einkafjármagni geti haft neikvæð áhrif á samkeppni til skemmri og lengri tíma. Of mikil skuldsetning geti leitt til sóunar og óhagkvæmrar nýtingar framleiðsluþátta. McKinsey telur mikilvægt að stjórnvöld búi svo um hnútana að samkeppnisyfirvöld hafi yfir þeim tækjum og fjármagni að ráða sem dugi til að koma í veg fyrir neikvæðar langtímaafleiðingar af þessu sérstaka ástandi. Núverandi staða, með of löngum tíma til rannsóknar mikilvægra samkeppnismála, skapi mikla óvissu í rekstri margra fyrirtækja.

McKinsey telur að vegna smæðar landsins hafi Samkeppniseftirlitið mikilvægu hlutverki að gegna við að rata hinn gullna meðalveg á milli stærðarhagkvæmni fyrirtækja og neytendaverndar. Samkeppniseftirlitið verði að sýna ákveðinn sveigjanleiki í því mati sínu, sér í lagi er varðar samrekstur keppinauta á mikilvægum kerfum í fjármagnsfrekum atvinnugreinum.

Í niðurstöðu skýrslu sinnar ítrekar McKinsey nauðsyn þess að mikilvægar stofnanir hafi yfir því fjármagni að ráða sem geri þeim kleift að takast á við þær krefjandi aðstæður sem nú ríkja á Íslandi. Samkeppniseftirlitið tekur heilshugar undir þetta. Ef fjárlagafrumvarp fyrir árið 2013 nær óbreytt fram að ganga munu raunframlög til hefðbundinna verkefna Samkeppniseftirlitsins hafa lækkað um fjórðung frá 2008. Þær fjárheimildir sem eftirlitinu eru ætlaðar duga engan veginn til að takast á við þær krefjandi aðstæður sem McKinsey lýsir í skýrslu sinni.

See skýrslu McKinsey & Company (104 bls. PDF skjal).

Other news

All news and articles

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.