Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

Hæstiréttur staðfestir að Síminn hafi brotið af sér og hækkar álagða sekt

6. December 2012
Snowcap Mountain

FarsímiÍ lok árs 2009 komst The Competition Authority að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði gerst brotlegur við skilyrði sem samkeppnisráð setti honum í ákvörðun frá árinu 2005 og þannig raskað með alvarlegum hætti samkeppni frá minni keppinautum. Mál þetta á rætur að rekja til kæru sem fyrirtækið TSC sendi Samkeppniseftirlitinu. TSC er lítið fjarskiptafyrirtæki sem starfar á norðanverðu Snæfellsnesi. TSC byggði á því að Síminn hefði beitt fyrirtækið ólögmætum viðskiptahindrunum og hindrað samkeppni, m.a. með hindrunum á aðgangi að flutningskerfi Símans vegna dreifingar á sjónvarpsefni Íslenska sjónvarpsfélagsins (Skjár 1). Eftir rannsókn málsins taldi Samkeppniseftirlitið sannað að Síminn hefði brotið gegn tveimur skilyrðum sem sett voru í umræddri ákvörðun samkeppnisráðs nr. 10/2005, Samruni Landssíma Íslands hf. og Íslenska sjónvarpsfélagsins hf., og þannig hindrað TSC að taka þátt í samkeppni á Snæfellsnesi. Lagði Samkeppniseftirlitið 150 m.kr. á Símann vegna þessa.

Síminn kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til Appeals Committee for Competition Affairs sem lauk málinu í mars 2010. Staðfesti áfrýjunarnefnd þá niðurstöðu að Síminn hefði brotið umrædd skilyrði og að um alvarleg brot hefði væri að ræða. Vegna m.a. versnandi fjárhagsafkomu Símans var sektin hins vegar lækkuð í 50 m.kr. Síminn skaut úrskurði áfrýjunarnefndar til dómstóla.

Í janúar sl. staðfesti héraðsdómur Reykjavíkur að Síminn hafi brotið gegn því skilyrði sem fól í sér bann við að tvinna saman fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu. Komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að þessi hegðun Símans hafi verið til þess fallin að „veikja samkeppnisstöðu smárra fjarskiptafyrirtækja, sem byggðu afkomu sína á rekstri staðbundinna dreifikerfa, eins og TSC ehf. Skapaðist við það hætta á því að þau hyrfu af markaði …“ Héraðsdómur féllst hins vegar ekki á þá niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála að Síminn hefði brotið skilyrði sem lagði á hann skyldu að veita öðrum fyrirtækjum aðgang að dreifikerfi fyrirtækisins fyrir sjónvarp og útvarp. Taldi dómurinn að ekki væri nægjanlega skýrt að það skilyrði tæki til fyrirtækja eins og TSC. Héraðsdómur féllst ekki á þá kröfu Símans að fella niður stjórnvaldssektina og benti á skaðleg áhrif af háttsemi Símans markaðnum fyrir nettengingar og Internetþjónustu á Snæfellsnesi. Þar sem dómurinn taldi brotið ekki eins umfangsmikið og áfrýjunarnefnd lækkaði hann sektina í 30 m.kr.

Bæði Samkeppniseftirlitið og Síminn áfrýjuðu dómi héraðsdóms til Hæstaréttar. Með dómi sínum í dag staðfesti Hæstiréttur framangreinda niðurstöðu Héraðsdóms um brot Símans. Hins vegar taldi Hæstiréttur rétt, með hliðsjón af eðli brots Símans, að sekt fyrirtækisins yrði hækkuð. Var því felld úr gildi niðurstaða héraðsdóms um lækkun sektar og skal Síminn því greiða 50 m.kr. í sekt, í stað 30.

Background information

Í ákvörðun samkeppnisráðs nr. 10/2005 var lagt bann við því að Síminn tvinnaði saman sölu á fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu. Var þetta liður í því að tryggja að keppinautar Símans í Internetþjónustu gætu á jafnréttisgrundvelli boðið viðskiptavinum sínum upp á eftirsóknarvert sjónvarpsefni því ella gæti það leitt til alvarlegra samkeppnishamlna fyrir minni keppinauta. Síminn braut gegn þessu banni með því að láta sjónvarpsefni Íslenska sjónvarpsfélagsins, flutning þess og dreifingu fylgja frítt með í verði ADSL tenginga Símans vegna Internetþjónustu og raskaði þar með samkeppni.

Companies that agree to conditions to remedy a restrictive merger must strive to ensure that the objectives of those conditions are achieved. It constitutes a serious breach by Síminn to go against its undertaking not to take actions such as those at issue in this case.

Other news

All news and articles

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.