Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

Dómur Hæstaréttar í samráðsmáli olíufélaganna

31. January 2013
Snowcap Mountain

BensíndælaÍ dag hefur Hæstiréttur Íslands kveðið upp dóm í samráðsmáli Olíuverslunar Íslands hf., Skeljungs hf. og Kers hf. (áður Olíufélagið hf.). Í niðurstöðu Hæstaréttar felst að máli félaganna er vísað frá héraðsdómi. Með dómi sínum frá 22. mars 2012 felldi Héraðsdómur Reykjavíkur úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá 31. janúar 2005 um álagningu stjórnvaldssekta, samtals að fjárhæð 1,5 milljarði kr, á félögin vegna langvarandi samráðs þeirra. Dómur Hæstaréttar í dag hefur þau áhrif að úrskurður áfrýjunarnefndar um sektir stendur.

Forsaga málsins er sú að samkeppnisráð tók decision þann 28. október 2004 og komst að þeirri niðurstöðu að Olíuverslun Íslands, Skeljungur og Olíufélagið (nú Ker hf.) hefðu framið alvarleg brot á samkeppnislögum. Samkeppnisráð lagði verulegar sektir á félögin. Þau kærðu ákvörðun samkeppnisráðs til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem kvað upp úrskurð 31. janúar 2005. Með þeim úrskurði lauk málsmeðferð samkeppnisyfirvalda.

Áfrýjunarnefnd staðfesti í öllum aðalatriðum niðurstöðu samkeppnisráðs um brotin en lækkaði sektir og taldi hæfilegt að þær næmu samtals 1,5 milljarði kr. Umrædd brot félaganna eru umfangsmestu samráðsbrot sem upprætt hafa verið hér á landi og ullu þau almenningi, atvinnulífinu og opinberum aðilum tjóni.

Á árinu 2005 skutu félögin úrskurði áfrýjunarnefndar til Héraðsdóms Reykjavíkur. Fyrir héraðsdómi gerði Samkeppniseftirlitið athugasemdir við málatilbúnað þeirra og beindi því til héraðsdóms hvort vísa bæri málinu frá dómi. Málareksturinn í héraði tók afar langan tíma í héraði, einkum vegna gagnaöflunar í formi matsgerða sem félögin töldu nauðsynlegt að ráðast í.

Í dómi Héraðsdóms frá 22. mars 2012 var staðfest að félögin höfðu með sér ólögmætt samráð og brutu gegn samkeppnislögum en úrskurður áfrýjunarnefndar var þrátt fyrir það felldur úr gildi vegna þess að dómurinn taldi að brotið hefði verið á andmælarétti félaganna. Samkeppniseftirlitið gat ekki fallist á þá niðurstöðu og áfrýjaði málinu til Hæstaréttar sem kvað upp sinn dóm í dag.

Máli félaganna er vísað frá héraðsdómi vegna verulegra galla á málatilbúnaði þeirra. Að mati Hæstaréttar er ágallinn það alvarlegur að hann varðar frávísun málsins í heild sinni frá dómstólum. Þetta dómsmál félaganna er því ónýtt og framangreindur úrskurður áfrýjunarnefndar stendur því óhaggaður.

Other news

All news and articles

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.