Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

SFF misskilur boðskap Samkeppniseftirlitsins um rekstrarkostnað banka

12. February 2013
Snowcap Mountain

Samtök FjármálafyrirtækjaHár rekstrarkostnaður bendir til lítils samkeppnisaðhalds

Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) gáfu út fréttatilkynningu í dag þar sem fram kemur það mat samtakanna að samanlagður rekstrarkostnaður Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans hafi hækkað um fimm milljarða á árunum 2009-2011 að teknu tilliti til samruna og skatta. Það er svipað mati Samkeppniseftirlitsins í skýrslu nr. 1/2013 Financial services at a crossroads þar sem segir að rekstrarkostnaður bankanna hafi aukist um 18 milljarða á verðlagi ársins 2012 en um helming aukningarinnar megi rekja til áhrifa samruna og 1,5 milljarð vegna fjársýsluskatts á laun og skattlagningar til fjármögnunar á rekstri Fjármálaeftirlitsins og Umboðsmanns skuldara. Í útreikningum sínum hafði Samkeppniseftirlitið einnig tekið tillit til áætlaðs rekstrarkostnaðar 2012 sem metinn var út frá níu mánaða uppgjörum bankanna.

Umfjöllun SFF bendir ekki til að stóru viðskiptabankarnir þrír innan vébanda samtakanna hafi meðtekið þann boðskap sem Samkeppniseftirlitið vildi koma á framfæri með umfjöllun um rekstrarkostnað og vaxtamun banka. Stóru viðskiptabankarnir eru að stækka með yfirtökum og rekstrarkostnaður þeirra, með og án áhrifa samruna, að aukast. Athuganir Samkeppniseftirlitsins benda eindregið til þess að aðhald með rekstri þeirra sé minna en almennt í rekstri á öðrum sviðum hagkerfisins eftir hrun. Rekstrarkostnaður er þó aðeins einn þáttur í þessari mynd, þó hann gefi vissulega til kynna að samkeppnisaðhaldi á fjármálamarkaði sé áfátt. Aðeins virk samkeppni er líkleg til að knýja bankana til að deila ábata af hagræðingu með viðskiptavinum sínum.

Hár vaxtamunur leggst þungt á heimili og fyrirtæki

Samtökin gera vaxtasamanburð í skýrslunni að sérstöku umtalsefni. Af því tilefni bendir Samkeppniseftirlitið á að samkvæmt skýrslu framkvæmdastjórnar ESB sem kennd er við Liikanen voru aðeins nokkur lönd í A-Evrópu með vaxtamun sem var yfir 2% af heildareignum. Á flestum hinum Norðurlöndunum var þetta hlutfall undir 1% samanborið við liðlega 3% á Íslandi. Það verður að teljast ótrúverðugur málflutningur að þessi mikli munur sé eðlilegur og stafi aðeins af „aðferðum við bókfærslu“ endurmetinna lánasafna og háu hlutfalli innlána af heildarfjármögnun líkt og SFF gefur í skyn.

Hvað varðar áhrif endurmetnu lánasafnanna á vaxtamuninn þá þurfa bankarnir að sýna fram á að þessi áhrif hafi verið veruleg til þess að hnekkja þeim ályktunum sem fram koma í skýrslu Samkeppniseftirlitsins. Það hefur SFF ekki gert með neinum hætti. Í þessu sambandi skal það tekið fram að þær vaxtatekjur sem Samkeppniseftirlitið miðaði við innihalda ekki tekjuáhrif af endurmati á virði útlána og krafna sem er sérstakur liður í reikningum bankanna. Áhrif endurmats útlánasafnsins á vaxtatekjur eru því tiltölulega takmörkuð enda þótt þau séu vissulega til staðar vegna beitingar virkra vaxta við tekjufærslur er tengjast endurmetnu lánunum.

Hvað varðar innlánshlutfallið þá virðist mega skilja málflutning SFF svo að samtökin líti svo á að það sé eðlilegt að banki sem fjármagnar sig í ríkum mæli með innlánum ætti að vera með meiri vaxtamun en aðrir bankar. Slík röksemdafærsla er þversagnakennd því innlán eru almennt ódýrari fjármögnun fyrir banka heldur en skuldabréfaútgáfa á markaði og gefur tilefni til lægri útlánsvaxta á markaði ef samkeppni er virk. Ekki verður séð að hátt hlutfall innlánsfjármögnunar banka geti falið í sér réttlætingu á miklum vaxtamun. Rök bankanna í þessum efnum eru því veik.

Viðbrögð SFF styðja við vísbendingar um að samkeppni sé áfátt

Sérstaka athygli vekur að Samtök fjármálafyrirtækja standi að sameiginlegum viðbrögðum viðskiptabankanna við skýrslunni. Varhugavert verður að teljast að samtök af þessu tagi séu farvegur fyrir sjónarmið sem byggja á rekstrarupplýsingum bankanna og varða kjarna þeirrar samkeppni sem ríkja á milli þeirra samkvæmt samkeppnislögum. Þátttaka samtakanna í þessari umræðu styður við vísbendingar um að samkeppni á fjármálamarkaði sé áfátt, líkt og Samkeppniseftirlitið rekur í skýrslunni. Það bæri vott um heilbrigðara samkeppnisumhverfi á markaði fyrir viðskiptabankaþjónustu ef hver og einn viðskiptabankanna tæki þátt í umræðu af þessu tagi með sjálfstæðum hætti.

Other news

All news and articles

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.