Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

Samkeppniseftirlitið leggur 500 m.kr. sekt á Valitor fyrir alvarleg brot á samkeppnislögum

12. April 2013
Snowcap Mountain

Í decision Samkeppniseftirlitsins, sem birt er í dag, er komist að þeirri niðurstöðu að Valitor hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust gegn keppinautum félagsins á markaði fyrir færsluhirðingu. Einnig braut Valitor gegn skilyrðum sem fyrirtækið hafði skuldbundið sig til þess að virða.

Mál þetta varðar markaðinn fyrir færsluhirðingu. Færsluhirðing felst í þeirri þjónustu við söluaðila (t.d. verslanir) að veita þeim heimild til að taka við greiðslum með greiðslukortum, taka við færslum þeirra og greiða þeim út þegar korthafar greiða reikninga sína. Valitor er markaðsráðandi á þessum markaði og einnig starfa á markaðnum Borgun hf. og Kortaþjónustan (Teller).

Í lok árs 2007 og viðurkenndi m.a. Valitor víðtæk brot á samkeppnislögum og samþykkti að greiða stjórnvaldssekt sem nam 385 m.kr. Einnig féllst Valitor á að hlíta skilyrðum sem ætlað var m.a. að koma í veg fyrir að fyrirtækið myndi á ný misnota markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem ætlað var að valda keppinauti samkeppnislegu tjóni. Lauk þessu máli endanlega í upphafi árs 2008, sbr. ákvörðun Samkeppniseftirlitsins No. 4/2008.

Samkeppniseftirlitið hefur haft til rannsóknar kæru Borgunar og nokkrar ábendingar vegna háttsemi Valitors á markaði fyrir færsluhirðingu. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem birt er í dag kemur fram Valitor hafi brotið gegn tveimur skilyrðum sem félagið hafði  samþykkt að hlíta í sáttinni frá 2007. Í því fólst m.a. að Valitor misnotaði trúnaðarupplýsingar um keppinauta sína í færsluhirðingu sem félagið hafði aðgang að vegna stöðu sinnar í útgáfu VISA greiðslukorta hér á landi. Þessi skilyrði voru viðbrögð við alvarlegum brotum Valitors og voru sett til að vinna gegn frekari brotum fyrirtækisins. Er í eðli sínu afar alvarlegt að fyrirtæki brjóti skilyrði af þessum toga sem það hefur skuldbundið sig til þess að virða.

Brot Valitors fólust einnig í svonefndri undirverðlagningu. Í þeirri háttsemi felst í aðalatriðum að markaðsráðandi fyrirtæki selur vörur undir kostnaðarverði. Í viðskiptum færsluhirða og söluaðila er gerður greinarmunur á annars vegar debetkortum og hins vegar kreditkortum. Er verulegur munur á meðferð þessara korta í viðskiptum og uppgjöri vegna þeirra. Leiðir þetta til þess að verðlagning færsluhirða gagnvart söluaðilum vegna þessara tveggja kortategunda er mismunandi. Háttsemi Valitors fólst í því að fyrirtækið verðlagði þjónustu sína í færsluhirðingu vegna debetkorta undir breytilegum kostnaði á árunum 2007 og 2008. Með þessari undirverðlagningu var félagið líklegra til að fá samninga við söluaðila um færsluhirðingu vegna kreditkorta sem talin er arðsamari þjónusta. Var umfang þessarar undirverðlagningar verulegt og beitt m.a. gagnvart öflugum smásölum. Miklu skiptir að öll verðmyndun sé eðlileg á svo mikilvægu sviði viðskipta og minni keppinautar séu ekki með óeðlilegum hætti hindraðir í að veita samkeppnislegt aðhald. Jafnvel þó viðskiptavinir njóti þess til skamms tíma að fá þjónustu á mjög lágu verði, leiðir röskun á samkeppni sem slík óeðlileg verðlækkun markaðsráðandi fyrirtækis veldur, þegar til lengri tíma er litið, til fækkunar keppinauta, hærra verðs, minni þjónustu eða gæða og til þess að valkostum viðskiptavina fækki. Samkeppnislögum er m.a. ætlað að tryggja að virk samkeppni gagnist neytendum og atvinnulífinu til lengri tíma litið.

Hér er um að ræða ítrekuð brot Valitors og Samkeppniseftirlitið telur að þau hafi verið framin af ásetningi. Er því um mjög alvarleg brot að ræða og telur Samkeppniseftirlitið hæfilegt að Valitor greiði 500 m.kr. í sekt.

Other news

All news and articles

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.