
The Competition Authority has made a decision No. 12/2013, Financial separation at the West, South and East Health Authorities. The decision provides for a financial separation between the part of the operations of the health institutions in West, South and East Iceland that is in free competition and the part of the operations that is run with public funding.
Samkeppniseftirlitið hefur lagt áherslu á það að koma í veg fyrir svokallaðar opinberar samkeppnishömlur, þ.e. að framkvæmd og lagasetning hins opinbera takmarki ekki samkeppni að óþörfu. Í þessu samhengi má meðal annars benda á skýrslu Samkeppniseftirlitsins nr. 2/2008, Robust development – opening up markets and boosting business activity og álit eftirlitsins nr. 2/2009, Government assessment of competition. Í 14. gr. samkeppnislaga er kveðið á um heimild Samkeppniseftirlitsins til að mæla fyrir um fjárhagslegan aðskilnað hjá opinberum fyrirtækjum eða fyrirtækjum sem starfa að einhverju leyti í skjóli opinbers einkaleyfis eða verndar. Mikilvægt er að tryggja að sá hluti rekstrar slíkra aðila sem er í frjálsri samkeppni sé ekki niðurgreiddur með fé úr þeim hluta rekstrarins sem nýtur opinbers einkaleyfis eða verndar. Ef það er ekki tryggt er hætta á því að samkeppni á markaði sé raskað og að fjármunum hins opinbera sé ekki nægjanlega vel varið.
Rannsókn málsins hófst í kjölfar þess að Samkeppniseftirlitinu barst erindi frá Vinnuvernd ehf. Vinnuvernd er fyrirtæki sem sérhæfir sig í sértækri heilbrigðisþjónustu og heilsueflingu á vinnustöðum. Heilbrigðisstofnanirnar á Vesturlandi, Suðurlandi og Austurlandi hafa boðið fyrirtækjum upp á sambærilega þjónustu og Vinnuvernd veitir. Í erindi Vinnuverndar kom meðal annars fram að það væri mat fyritækisins að fjárhagslegur aðskilnaður væri ekki nægjanlega tryggður í rekstri heilbrigðisstofnananna. Var það mat Samkeppniseftirlitsins að kveða þyrfti formlega á um fjárhagslegan aðskilnað í málinu.
"*" indicates required fields