Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

Rekstrarfélag Kringlunnar breytir umgjörð sinni og starfsháttum eftir skoðun Samkeppniseftirlitsins

17. October 2013
Snowcap Mountain

Merki KringlunnarSamkeppniseftirlitið hefur haft til skoðunar hvort ástæða sé til að hefja rannsókn á því hvort Rekstrarfélag Kringlunnar (hér eftir Kringlan) og/eða verslunarfyrirtæki í Kringlunni hafi brotið gegn samkeppnislögum. Forsaga skoðunar Samkeppniseftirlitsins er nánar tiltekið sú að í desembermánuði 2012 birtust fréttir í fjölmiðlum þar sem fram kom að eiganda verslunarinnar Maníu, hafi verið tilkynnt af forsvarsmönnum Kringlunnar að hún þyrfti að loka jólamarkaði sínum sem hún kom á fót í Kringlunni í sama mánuði. Leiddi þessi fréttaflutningur til þess að Samkeppniseftirlitið ákvað að eigin frumkvæði að afla upplýsinga.

Við skoðun Samkeppniseftirlitsins komu m.a. fram vísbendingar um að ákvæði í félagssamþykktum og reglum Kringlunnar gætu falið í sér brot gegn ákvæðum samkeppnislaga.

Í tengslum við þessa athugun Samkeppniseftirlitsins hefur Kringlan boðað breytingar og endurskoðun á regluverki félagsins. Varða breytingarnar m.a. skipan og hlutverk stjórnar Kringlunnar. Þannig að eftirleiðis geta ekki setið í stjórn einstaklingar sem hafa ríkra samkeppnishagsmuna að gæta í Kringlunni en fyrir breytinguna gátu fasteignaeigendur eða afnotahafar í Kringlunni tekið sæti í stjórn félagsins. Einnig fela breytingarnar t.d. í sér innleiðingu ákvæðis í samskiptareglur Kringlunnar þar sem kveðið er á um að reglurnar eigi ekki koma í veg fyrir verðsamkeppni á milli rekstraraðila Kringlunnar.  Kringlan hefur tekið fram að þessar breytingar feli ekki í sér viðurkenningu á brotum heldur séu gerðar til þess að taka af öll tvímæli um að starfsemi Kringlunnar sé ætlað að vera í fullu samræmi við kröfur samkeppnislaga.

Með hliðsjón af endurskoðun og breytingum Kringlunnar á regluverki sínu og starfsemi hefur Samkeppniseftirlitið ákveðið að aðhafast ekki frekar vegna málsins að svo stöddu. Verði hins vegar ekki af áformuðum og áður lýstum breytingum á umgjörð og starfsemi rekstrarfélagsins við fyrstu hentugleika og eigi síðar en í nóvember nk., kann Samkeppniseftirlitið að taka málið til formlegrar rannsóknar.

Samkeppniseftirlitið tekur fram að það telur samkeppni á vettvangi verslunarmiðstöðva þýðingarmikla. Er mikilvægt að öllum hlutaðeigandi sé ljóst að samstarf á m.a. vettvangi Kringlunnar má ekki með óeðlilegum hætti hindra aðgang nýrra keppinauta að markaðnum og draga úr samkeppni. Það er því mikilvægt að aðrar verslunarmiðstöðvar og –kjarnar, auk annarra samtöka verslana, endurskoði umgjörð sína og starfshætti með hliðsjón af framangreindu. Að öðrum kosti kann síðar að koma til afskipta Samkeppniseftirlitsins.

Other news

All news and articles

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.