Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

Samkeppniseftirlitið hefur til athugunar hvernig brugðist verði við úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála um úthlutun afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli

28. February 2014
Snowcap Mountain

Photo of a WOW air aircraft © WOW air ehf. - Photo: WOW.isMeð úrskurði sínum í dag hefur áfrýjunarnefnd samkeppnismála fellt úr gildi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 25/2013, um úthlutun afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli. Í ákvörðuninni brást Samkeppniseftirlitið við kvörtun frá Wow Air og beindi þeim fyrirmælum til Isavia, sem í umboði íslenska ríkisins ber ábyrgð á rekstri Keflavíkurflugvallar, að tryggja Wow Air aðgang að samkeppnislega mikilvægum afgreiðslutímum fyrir flugvélar á flugvellinum. Komist var að þeirri niðurstöðu að núverandi fyrirkomulag úthlutunar á afgreiðslutímum hafi leitt til þess að Icelandair, langstærsti keppinauturinn, hefði forgang að nær öllum mikilvægustu afgreiðslutímum á flugvellinum. Slíkt væri til þess fallið að raska með alvarlegum hætti samkeppni í flugi til og frá landinu.

Samkeppniseftirlitið beindi fyrirmælum sínum til Isavia. Í úrskurði áfrýjunarnefndar er byggt á því að danskur aðili, Frank Holton, sem forveri Isavia réði til þess að vera samræmingarstjóri við úthlutun flugafgreiðslutíma, fari með sjálfstætt stjórnsýsluvald samkvæmt íslenskum lögum og að Isavia bresti því heimild til hvers kyns afskipta af úthlutun hans á afgreiðslutímum á Keflavíkurflugvelli. Samningsákvæði um að Isavia geti hvernær sem er sagt samræmingarstjóranum upp og að samræmingarstjórinn geti ekki undir nokkrum kringumstæðum borið ábyrgð á kvörtunum vegna starfa sinna samkvæmt samningnum, breyta engu hér um að mati áfrýjunarnefndar.

Í úrskurði áfrýjunarnefndar er ekki tekin efnisleg afstaða til samkeppnisaðstæðna á Keflavíkurflugvelli, sem lágu til grundvallar upphaflegri ákvörðun. Ekki er því raskað þeirri niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins að núverandi fyrirkomulag úthlutunar á afgreiðslutímum hafi leitt til þess að Icelandair, langstærsti keppinauturinn, hafi forgang að nær öllum mikilvægustu afgreiðslutímum á flugvellinum. Úthlutunarfyrirkomulagið hafi því takmarkað mjög möguleika annarra flugfélaga til þess að keppa við Icelandair og þannig skaðað samkeppni á því mikilvæga sviði sem farþegaflug til og frá landinu er.

Samkeppniseftirlitið hefur nú til athugunar hvernig brugðist verði við framangreindum úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Í því efni kemur m.a. til álita að hefja nýtt mál gagnvart hinum danska samræmingarstjóra, í ljósi þess að áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að hann fari með sjálfstætt stjórnsýsluvald á þessu sviði, samkvæmt íslenskum lögum. Einnig kemur til álita að bera úrskurðinn undir dómstóla.

Áður en Samkeppniseftirlitið tekur ákvörðun um viðbrögð við úrskurðinum mun eftirlitið leita sjónarmiða málsaðila, þ.e. Isavia, Wow Air og Icelandair. Ennfremur mun eftirlitið leita sjónarmiða innanríkisráðuneytisins. Minnt er á í því sambandi að flugmálayfirvöld hafa ekki farið að tilmælum Samkeppniseftirlitsins frá árinu 2008, þess efnis að breyta úthlutunarreglum á flugvellinum. Hefði það verið gert, hefði verið unnt að bæta samkeppnisaðstæður í flugi til og frá landinu og komast hjá framangreindum málarekstri.

Other news

All news and articles

In light of the coverage of the „Competition Authority's rules“ and mass redundancies

  • 22 May 2026
  • News

The Competition Authority advises Storytel to exercise caution.

  • 22 May 2026
  • News

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.