
Samkeppniseftirlitið hefur haft til rannsóknar ósk Símans hf. og Skjásins ehf. um niðurfellingu á ákvörðun samkeppnisráðs No. 10/2005, Samruni Landssíma Íslands hf. og Íslenska sjónvarpsfélagsins hf. Í kjölfar viðræðna við aðila hefur Samkeppniseftirlitið fallist á að breyta gildandi skilyrðum þannig að fellt er niður bann við sameiningu félaganna. Síminn og Skjárinn hafa í þessu samhengi fallist á að hlíta tilteknum bindandi skilyrðum í starfsemi sinni. Skilyrðin eru sett í því skyni að draga úr hættunni á mögulegum samkeppnishamlandi áhrifum, verði af sameiningingunni.
Samkvæmt framangreindu hafa Síminn og Skjárinn fallist á að sæta eftirfarandi helstu skilyrðum í starfsemi sinni:
Framangreind skilyrði eru byggð á mati á samkeppnisaðstæðum á viðkomandi mörkuðum. Það mat byggir á gögnum og sjónarmiðum hjá fyrirtækjum og stjórnvöldum á fjölmiðla- og fjarskiptamörkuðum. Ennfremur var lagt mat á alþjóðlega þróun á fjölmiðlamarkaði, einkum hugsanlegar breytingar á markaði m.a. fyrir áskriftarsjónvarp.
Samkeppniseftirlitið mun á næstunni birta á heimasíðu sinni ákvörðun þar sem skilyrði fyrir honum verða skýrð nánar.
"*" indicates required fields