
With ákvörðun nr. 9/2015 sem birt er í dag er tekin afstaða til yfirráða Arion banka hf. yfir AFLi-sparisjóði ses. Ákvörðunin grundvallast á sátt sem Samkeppniseftirlitið og Arion banki hafa gert með sér á grundvelli samkeppnislaga. Sáttin var gerð í framhaldi af því að Arion banki hafði öðlast full yfirráð yfir sparisjóðnum með breytingum á samþykktum sjóðsins, sem takmarkað höfðu atkvæðavægi bankans. Af því tilefni hafði Arion banki lýst því yfir að hann hyggðist selja hlut sinn í sjóðnum í opnu söluferli.
Í samræmi við þetta hefur Arion banki nú skuldbundið sig til að fara að eftirfarandi skilyrðum:
Skili sölutilraunir Arion banka ekki árangri innan sölufrestsins, er Arion banka heimilt að grípa til nauðsynlegra ráðstafana, með það að markmiði að sameina sparisjóðinn bankanum.
Áhugasömum er bent á að hafa hið fyrsta samband við Arion banka. Unnt er að beina athugasemdum vegna ferlisins til Arion banka eða Samkeppniseftirlitsins á netfangið samkeppni@samkeppni.is.
In the decision nr. 9/2015 er nánar fjallað um tildrög málsins og skyldur Arion banka samkvæmt framangreindum skilyrðum.
"*" indicates required fields