
With ákvörðun nr. 24/2015, sem birt er í dag, lýkur rannsókn Samkeppniseftirlitsins á brotum Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) á 12. gr. samkeppnislaga. SAF sneri sér til Samkeppniseftirlitsins og óskaði eftir sátt. Á þeim grundvelli hefur Samkeppniseftirlitið nýtt heimild samkeppnislaga og gert sátt við samtökin. Með ákvörðuninni og undirliggjandi sátt er komið í veg fyrir háttsemi sem fer gegn samkeppnislögum. Um leið er stuðlað að því að áframhaldandi uppbygging ferðaþjónustu á Íslandi byggi á forsendum heilbrigðrar samkeppni.
Samkvæmt 12. gr. samkeppnislaga er samtökum fyrirtækja, eins og SAF, óheimilt að ákveða samkeppnishömlur eða hvetja til hindrana sem bannaðar eru samkvæmt lögunum. Með sáttinni viðurkenna SAF m.a. að starfsemi samtakanna hafi farið gegn 12. gr. samkeppnislaga, einkum er varðar eftirfarandi háttsemi:
Mikilvægt er að vinna gegn því að sams konar háttsemi endurtaki sig á ferðaþjónustumarkaði og stuðla þannig að virkari samkeppni til frambúðar á mikilvægum markaði. Samhliða því að viðurkenna brot og fallast á greiðslu stjórnvaldssektar vegna þess hefur SAF því einnig fallist á að gera frekari breytingar á starfsemi sinni og innleiða m.a. samkeppnisréttaráætlun sem og að tryggja að stjórnendur og starfsmenn SAF, sem og aðildarfyrirtækja samtakanna, séu ávallt að fullu upplýstir um þær kröfur sem samkeppnisreglur gera til starfsemi fyrirtækja og samtaka fyrirtækja á samkeppnismörkuðum.
Ferðaþjónusta er ein af undirstöðum íslensks efnahagslífs. Það er afar mikilvægt fyrir áframhaldandi framþróun greinarinnar og efnahagslífið í heild að hún sé reist á stoðum heilbrigðrar samkeppni. Samkeppni leiðir til aukinnar skilvirkni fyrirtækja og eykur líkur á að nýir keppinautar komi inn á markaði og veiti þeim sem eru óskilvirkari samkeppni. Samkeppni býr einnig í haginn fyrir nýsköpun sem elur af sér ný atvinnutækifæri. Þetta ferli leiðir síðan af sér aukna framleiðni og efnahagsframfarir. Samhliða nýtur neytandinn betra verðs, gæða og úrvals. Skilyrði þau sem sett hafa verið í ákvörðun þessari stuðla að því að áframhaldandi uppbygging ferðaþjónustu á Íslandi byggi á þessum forsendum.
Rannsókn þeirri sem lýkur með framangreindri ákvörðun var viðamikil og tók til langs tíma í starfi samtakanna. Stóð rannsóknin í nokkur ár. Verulegar tafir urðu á rannsókninni á árunum 2010-2012. Meðferð málsins er nánar lýst í the decision.
"*" indicates required fields