
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála kvað í dag upp úrskurð vegna ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins frá 7. júlí síðastliðnum. Þar komst eftirlitið að þeirri niðurstöðu að MS hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína með alvarlegum hætti með því að selja keppinautum sínum grundvallarhráefni til framleiðslu á mjólkurvörum á óeðlilega háu verði á sama tíma og MS sjálft og tengdir aðilar fengu þetta hráefni á mun lægra verði, og að auki undir kostnaðarverði. Var þetta til þess fallið að veita MS og tengdum aðilum verulegt samkeppnisforskot og geta keppinauta til þess að keppa við MS og tengd félög skert með alvarlegum hætti. Taldi Samkeppniseftirlitið að háttsemin væri til þess fallin að skaða á endanum hagsmuni bæði neytenda og bænda. Þá lá fyrir að MS veitti Samkeppniseftirlitinu rangar upplýsingar og lét undir höfuð leggjast að upplýsa eftirlitið um mikilvæg gögn.
Meirihluti og minnihluti nefndarinnar eru sammála Samkeppniseftirlitinu um að Mjólkursamsalan hafi með alvarlegum hætti brotið samkeppnislög með því að halda mjög mikilvægum upplýsingum frá Samkeppniseftirlitinu við rannsókn málsins. Hafi félagið torveldað rannsóknina með því háttalagi. Staðfesti nefndin þá stjórnvaldssekt sem Samkeppniseftirlitið lagði á MS vegna þessa.
Í úrskurði sínu klofnaði áfrýjunarnefndin hins vegar í afstöðu sinni til þess hvort um misnotkun á markaðsráðandi stöðu hefði verið að ræða. Þannig byggir meirihluti nefndarinnar (tveir nefndarmenn) á því að ákvæði búvörulaga, sem heimilar mjólkurafurðastöðvum samstarf sem ella væri ólögmætt samkvæmt samkeppnislögum, hafi í raun heimilað MS að selja hrámjólk á lægra verði til tengdra aðila heldur en til sjálfstæðra afurðastöðva. Á þessum forsendum fellir meirihlutinn ákvörðun Samkeppniseftirlitsins út gildi að þessu leyti.
Minnihluti nefndarinnar (formaður nefndarinnar) lýsti sig hins vegar sammála þeirri niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins að MS „hafi brotið alvarlega gegn 11. gr. samkeppnislaga. Einnig tel ég að sú sekt sem ákveðin var í hinni kærðu ákvörðun sé rétt ákveðin …“
Nefndin fellst ekki á gagnrýni MS á málsmeðferð og rannsókn Samkeppniseftirlitsins.
Samkeppniseftirlitið mun nú fara yfir úrskurðinn og taka afstöðu til þess hvort rétt sé að bera hann undir dómstóla.
"*" indicates required fields