
By decision of the Competition Authority No. 8/2017, sem birt er í dag, eru leiddar til lykta athuganir sem varða mögulegar samkeppnishindranir á póstmarkaði. Athuganir þessar eiga rætur að rekja til allmargra kvartana og ábendinga sem borist hafa frá keppinautum Íslandspósts á liðnum árum. Til grundvallar ákvörðuninni liggur sátt sem Íslandspóstur og Samkeppniseftirlitið hafa gert.
Með sáttinni skuldbindur Íslandspóstur sig til þess að hlíta ítarlegum skilyrðum og gera breytingar á starfsemi sinni, sem vinna gegn samkeppnishömlum sem Samkeppniseftirlitið telur að rekja megi til einkaréttar á dreifingu áritaðra bréfa undir 50 gr. og sterkrar stöðu Íslandspósts á póstmarkaði og tengdum mörkuðum. Miða þessar ráðstafanir að því að bæta samkeppnisumhverfið á þessu sviði til frambúðar. Um leið er unnið gegn því vantrausti sem grafið hefur um sig gagnvart Íslandspósti á póstmarkaði.
Framangreindar ráðstafanir varða annars vegar breytingar á skipulagi Íslandspóstssamstæðunnar og hins vegar skilyrði um starfshætti fyrirtækisins.
Ákvæði er varða skipulag samstæðunnar eru einkum eftirfarandi:
Skilyrði sáttarinnar er varða starfshætti Íslandspósts eru m.a. eftirfarandi:
Með framangreindum fyrirmælum er markvisst unnið gegn ýmsum samkeppnishömlum og vantrausti sem endurspeglast í þeim kvörtunum og ábendingum sem borist hafa á liðnum árum. Einkum er lögð áhersla á að koma í veg fyrir að samkeppnisrekstur Íslandspósts njóti með óeðlilegum hætti einkaréttarstarfsemi fyrirtækisins og dregið úr hættu á ýmsum hindrunum sem stafað geta af sterkri stöðu Íslandspósts á markaði.
Með skilyrðum sáttarinnar er brugðist við mörgum umkvörtunarefnum sem birst hafa í formlegum erindum og ábendingum. Í sumum tilvikum er ekki fallist á viðkomandi kvartanir, einkum vegna þess að leyst hefur verið úr málinu á öðrum vettvangi, eða ekki þykir tilefni til frekari meðferðar á grundvelli forgangsröðunar stofnunarinnar.
Ákvæði samkeppnislaga heimila Samkeppniseftirlitinu að ljúka málum með sátt við fyrirtæki sem eru til rannsóknar. Með þeim er hægt að ná fram samkeppnisumbótum, en þær aðgerðir sem raktar eru hér að framan eru til þess fallnar að draga úr eða eyða samkeppnishindrunum sem Samkeppniseftirlitið telur að stafað hafi af einkarétti Íslandspósta á póstsendingum undir 50 gr. og sterkri stöðu á póstmarkaði og tengdum mörkuðum.
Í sáttinni felst ekki að Íslandspóstur viðurkenni brot eða greiði sektir. Fyrir liggur að heimild til sáttar er ekki bundin við að ótvíræð sönnun þess brotlega liggi fyrir. Við mat á því hvort leggja bæri sektir á fyrirtækið horfði eftirlitið m.a. til þess að löggjafinn hefur búið starfsemi Íslandspósts flókna umgjörð sem rekstarleyfishafa, einkaréttarhafa og alþjónustuveitanda. Þar á meðal eru í lögum ekki mörkuð afdráttarlaus og skýr skil milli samkeppnisrekstrar og einkaleyfisstarfsemi.
Á vettvangi Evrópusambandsins hefur einkaréttur hins opinbera á sviði póstþjónustu verið afnuminn. Íslenska ríkið er nú eina ríkið innan Evrópska efnahagssvæðisins sem ekki hefur ákveðið að fella niður einkarétt á póstþjónustu, eftir að ný póstlög tóku gildi í Noregi 1. janúar 2016. Í aðildarríkjum ESB féll allur einkaréttur á sviði póstþjónustu niður þann 1. janúar 2011 og í kjölfar þessa hafa nýir keppinautar haft heimild til þess að hefja samkeppni við fyrrum einkaleyfishafa í hvers konar póstþjónustu.
Reynslan hefur hins vegar verið sú að fyrrum einkaréttarhafar, sem í flestum tilvikum bera enn alþjónustuskyldu, eru eftir sem áður í lykilstöðu á sviði bréfapóstdreifingar í öllum ríkjum ESB. Á sviði dreifingar á bögglapósti hefur samkeppni aftur á móti virst vera að aukast samhliða vaxandi netviðskiptum sem hefur leitt til fjölgunar pakkasendinga á sama tíma og bréfasendingum hefur jafnt og þétt fækkað. Á vettvangi ESB er talið mikilvægt að stuðla að virkri samkeppni á póstmarkaði. Þrátt fyrir tæknibreytingar sé skilvirkur póstmarkaður enn mjög mikilvægur, m.a. til þess að styðja við þróun á hvers konar netsölu.
Hér á landi birti innanríkisráðuneytið á heimasíðu sinni drög að nýju frumvarpi til póstlaga, dags. 19. janúar 2016. Þar er lagt til að einkaréttur verði felldur niður hér á landi eins og annars staðar á EES-svæðinu. Frumvarp þessa efnis var ekki lagt fyrir Alþingi.
Það er mat Samkeppniseftirlitsins að einkaréttinn beri að fella niður hérlendis sem fyrst. Það er bæði til þess fallið að örva samkeppni og draga úr eftirlitsbyrði. Samhliða er brýnt að sá kostnaður sem hlýst af alþjónustu á sviði póststarfsemi sé dreginn upp á yfirborðið með sem skýrustum og gagnsæjustum hætti. Einn liður í því gæti mögulega falist í því að koma á útboðsfyrirkomulagi um framkvæmd póstdreifingar á afskekktari svæðum, til uppfyllingar alþjónustumarkmiðinu, þ.e. á svæðum sem slík þjónusta ber sig ekki á almennum viðskiptalegum grundvelli. Verði einkarétturinn felldur niður verða skilyrðin sem hvíla á Íslandspósti endurskoðuð.
"*" indicates required fields