Logo Competition
Send a suggestion
Send data
Menu
  1. Home
  2. Published material
  3. News

The Reykjavík District Court rejects MS's application to strike out

25. January 2018
Snowcap Mountain

Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í dag hafnaði dómurinn kröfu Mjólkursamsölunnar (MS) um að vísað yrði frá dómi máli sem Samkeppniseftirlitið hefur höfðað til þess að fá úr því skorið hvort bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu taki að fullu til MS og hvort brot hafi átt sér stað. Hefur Samkeppniseftirlitið talið að mikilvægt væri fyrir hagsmuni smærri framleiðenda, bænda og neytenda að fá úr þessu skorið. Úrskurðurinn felur í sér að málið fær nú efnismeðferð fyrir héraðsdómi.

Forsaga málsins er sú að í júlí 2016 komst Samkeppniseftirlitið að þeirri conclusion að MS hefði með alvarlegum hætti brotið gegn banni 11. gr. samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Nánar tiltekið hefði MS misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að selja smáum keppinautum sínum grundvallarhráefni til framleiðslu á mjólkurvörum, þ.e. hrámjólk, á óeðlilega háu verði á sama tíma og MS sjálft og tengdir aðilar (Kaupfélag Skagfirðinga og dótturfélag þess) fengu sama hráefni á mun lægra verði, og að auki undir kostnaðarverði. Jafnframt hefði MS brotið gegn skyldu samkeppnislaga til þess að veita sannar og fullnægjandi upplýsingar. Lagði Samkeppniseftirlitið á MS 440 mkr. sekt vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu og 40 mkr. sekt vegna brota á upplýsingaskyldu.

MS skaut ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem kvað upp sinn úrskurð 21. nóvember 2016. Meirihluti nefndarinnar komst að þeirri niðurstöðu að undanþáguákvæði búvörulaga hefðu vikið banni samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu til hliðar. Af þessu leiddi að sekt MS vegna brota á 11. gr. samkeppnislaga var felld úr gildi. Á hinn bóginn staðfesti nefndin að MS hefði framið alvarlegt brot á upplýsingaskyldu samkeppnislaga og að fyrirtækinu bæri að greiða 40 mkr. sekt vegna þess.

 Eftir skoðun á forsendum úrskurðar meirihluta áfrýjunarnefndar taldi Samkeppniseftirlitið nauðsynlegt að stefna MS fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur til þess að fá hnekkt  framangreindri niðurstöðu um samspil búvörulaga og samkeppnislaga. Miðar sú málshöfðun að því að fá úr því skorið hvort bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu taki að fullu til MS. Jafnframt verði fengin fullnaðarúrlausn um hvort fyrirtækið skuli sæta fullri ábyrgð vegna þeirrar háttsemi sem fjallað er um í málinu og Samkeppniseftirlitið hefur metið sem alvarleg brot gegn minni keppinautum. Mun Samkeppniseftirlitið krefjast þess að MS greiði þá stjórnvaldssekt sem eftirlitið taldi hæfilega í ákvörðun sinni frá júlí 2016. 

 MS krafðist þess að máli Samkeppniseftirlitsins yrði vísað í heild sinni frá dómi. Telur MS m.a. að Samkeppniseftirlitið hafi ekki heimild til þess að láta á það reyna fyrir dómstólum hvort meirihluti áfrýjunarnefndar samkeppnismála hafi túlkað undanþáguákvæði búvörulaga með réttum hætti. Jafnframt telur MS að Samkeppniseftirlitinu sé ekki stætt að því að fara fram á að dómstólar kveði á um þá sekt sem MS beri að greiða vegna brota á samkeppnislögum.

Málflutningur um frávísunarkröfu MS fór fram í morgun og kvað dómari upp úrskurð sinn í kjölfar hans. Var kröfu MS um frávísun málsins hafnað.

Other news

All news and articles

Kaldalón's purchase of FÍ Fasteignafélags properties approved

  • 11 May 2026
  • News

Monitoring necessary in a monopolistic market

  • 4th May 2026
  • NewsIn focus

The Competition Authority tasked with monitoring fuel pricing

  • 30 April 2026
  • NewsIn focus

„It is of enormous benefit to Icelandic society that there is competition in the financial market.“

  • 27 April 2026
  • NewsIn focus

Summer job for economics students at SKE

  • 22 April 2026
  • News
Composite image/SKE

Merger of Hekla and Bílson – consultation process

  • 20 April 2026
  • News
The Competition Authority has concluded that the merger of Ferro Zink ehf. and Metal ehf. hinders effective competition and must therefore be annulled.

The Competition Authority annuls the merger of Ferro Zink and Metal

  • 17 April 2026
  • News

The Competition Authority submits an opinion on the bill to reduce the value added tax on fuel.

  • 16 April 2026
  • News

Competitive assessment is a key factor in enhancing competitiveness.

  • 10 April 2026
  • News
Logo Competition
Borgartún 26, 105 Reykjavík
PO Box: 5120
Telephone: 585 0700

Shortcuts

  • Solutions
  • Laws and regulations
  • Complaints and enquiries
  • Instructional pages

Subjects

  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research

Competition Authority

  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Privacy Policy
New website (Beta)
Send a suggestion
Send data
  • Solutions
  • Decisions
  • Opinion
  • Reviews
  • Rulings
  • Reports
  • Subjects
  • Illegal collusion
  • Dominant market position
  • Merger case
  • Competition and the public sector
  • Market research
  • Education
  • Market definitions
  • Competitive indicators
  • Instructional pages
  • A conversation about competition
  • Frequently Asked Questions
  • Complaints and enquiries
  • Laws and regulations
  • Published material
  • News
  • Blog posts
  • In focus
  • Videos
  • Speeches and presentations
  • Articles
  • Reduction of VAT on fuel
  • About the Competition Authority
  • Governance and administration
  • Planning and strategy
  • Human resources
  • Procedure
  • Appellate Board
  • International cooperation
  • The symbol of the Competition Authority
  • Administrative review
  • Contact Us

Search

Leita..

The artificial intelligence is thinking...

New website samkeppni.is

The other day, it was launched. Beta version of a new website. We welcome all suggestions and comments regarding the new website via the form below.

"*" indicates required fields

This field is for validation purposes and should be left unchanged.