
Í dag kynnir Samkeppniseftirlitið til leiks fyrsta af þremur
fræðslumyndböndum sem ætlað er að varpa ljósi á samkeppnistengd málefni á
myndrænan og einfaldan hátt.
Myndböndin eru ætluð fólki á öllum aldri sem hefur áhuga á
að kynna sér þýðingu virkrar samkeppni, samkeppnislögin og hlutverk
Samkeppniseftirlitsins.
Myndbandið sem birt er í dag fjallar á almennan hátt
um samkeppnislögin, en á næstu vikum verða síðan birt myndbönd sem fjalla
annars vegar um misnotkun á markaðsráðandi stöðu og hins vegar um ólögmætt
samráð. Hægt er að horfa á fyrsta myndbandið í glugganum hér að neðan.
https://www.youtube.com/watch?v=PNmIElkaMXw
Útgáfa fræðslumyndbandanna er í takti við þann vilja
löggjafans að efla hlutverk Samkeppniseftirlitsins sem málsvara fyrir
samkeppnislögin og öfluga samkeppni. Eru þessar áherslur einnig í samræmi við
markmið sem sett hafa verið fram í fjármálaáætlun á málefnasviði eftirlitsins.
Í tengslum við breytingar á samkeppnislögum árið 2020 kom eftirfarandi meðal
annars fram í frumvarpinu:
“Til að
ábati virkrar samkeppni skili sér að fullu út í samfélagið er mikilvægt að koma
fyrir fram í veg fyrir samkeppnislagabrot með aukinni fræðslu um samkeppnismál
samfara því að sinna eftirliti með háttsemi fyrirtækja á markaði eftir á
(ex-post).“
Þá var það áréttað að eitt af hlutverkum Samkeppniseftirlitsins sé að stuðla að umræðu og
fræðslu um samkeppnismál og ábata virkrar samkeppni fyrir atvinnulíf og
neytendur. Í því samhengi var eftirfarandi tekið fram:
„Rétt þykir
að þetta mikilvæga hlutverk stofnunarinnar fái aukið vægi, líkt og
Samkeppniseftirlitið hefur lagt áherslu á undanfarin ár, enda er það til þess
fallið að efla faglega umræðu um samkeppnismál hér á landi.“
Við undirbúning á fræðslu Samkeppniseftirlitsins eru meðal
annars hafðar til hliðsjónar niðurstöður úr könnunum sem Samkeppniseftirlitið
lét framkvæma árin 2019 og 2020. Niðurstöður þeirra voru kynntar í skýrslunum Þekking
og viðhorf stjórnenda íslenskra fyrirtækja til samkeppnismála and Viðhorf
almennings til samkeppnismála.
Niðurstöðurnar sýndu meðal annars að 30% stjórnenda
íslenskra fyrirtækja töldu sig þekkja bannreglur samkeppnislaga illa eða alls
ekkert. Þá sýndu kannanir einnig að þrátt fyrir að almenningur hér á landi sé
meðvitaður um þýðingu samkeppnislaga fyrir hagsmuni sína sé full ástæða til að
efla þekkingu almennings á samkeppnisreglum, ekki síst yngri hópa.
Það er von Samkeppniseftirlitsins að fólk á öllum aldri geti
haft gagn og gaman af myndböndunum. Auk þess að vera aðgengileg hér á
vefsíðunni verða þau einnig á Facebook og YouTube síðum Samkeppniseftirlitsins.
"*" indicates required fields